Jæja… Eftir að hafa lesið blogg annara um nokkurt skeið hefur ritþráin gripið mig og ég ákvað að demba mér í það að blogga sjálfur. Ég hef velt því fyrir mér undanfarið hvað ég ætti svo sem að skrifa um og enn ekki komist að neinni ákveðinni niðurstöðu. Ég held að þegar að því kemur að mig langar virkilega að tjá mig um eitthvað verði ég því feginn að hafa þennan vettvang til þess. Planið er þó svona í upphafi að blogga bara um það sem ég er að gera og upplifa. Blogga um skólann, námsefnið og þær hugleiðingar sem ég hef um þau málefni. Um veiðitúrana sem ég kem til með að fara í og veiði almennt. Gott ef ég mun ekki skrifa hérna veiðistaðalýsingar og eitthvað um þá tækni sem ég hef lært eða lesið um og hafa virkað í real life.
Svo er ég auðvitað langt kominn með námið mitt og stefni að því að taka master í markaðsfræði og þá mjög sennilega þjónustumarkaðsfræði svo að mér datt í hug að það væri nú ekki seinna vænna fyrir að fara að koma mér á framfæri við framtíðarvinnuveitendur.
Nú ef ég les góða bók, horfi á góða mynd, heyri góða hugmynd eða fæ góða hugmynd er ekki úr vegi að ræða það hér og fá þá vonandi viðbrögð frá lesendum. En fyrst um sinnn verður að afsakast allt sem heitir útlit á síðunni (á meðan ég er að púsla henni saman og læra á alla fítusa) og jafnvel innantómt rugl sem ekkert vit er í á meðan ég er að finna réttu blogg röddina.
Stjáni
Flokkað undir: Uncategorized