Hahahahaha mig langar að koma því á framfæri varðandi færsluna hér á undan að ég var að sjálfsögðu að grínast með að brögð væru í tafli með kosninguna í Eurovision. Ég áttaði mig á því að ekki eru allir sem lesa þetta sem þekkja mig og því er hætta á því að skrif mín um Eurovision verði tekin alvarlega. Ég var semsagt að grínast!!!
En ég stend hins vegar við það sem ég skrifa um Friðrik Ómar og ummæli hans. Hann vann (jeij, loksins) og það eitt segir allt sem segja þarf og ætti að vera nóg til að svara gagnrýnisröddum. Þessi ummæli hans voru óþarfi og gerðu ekkert fyrir hann nema vont (eins og sést í bloggheimum í dag).
Þá er það komið til skila.
Flokkað undir: Pælingar | Tagged: eurovision, Friðrik Ómar, grín, hroki
Sæll og já takk fyrir síðast….takk fyrir hlý orð á síðunni þinni
Það er rétt hjá þér að orð Friðriks Ómars líta út sem hroki fyrir þá sem hafa ekkert heyrt af einhverju sem á undan á að hafa gengið. Það er aldrei betra að svara svona.
Mín var ánægjan og ég stend við það að mér finnst þú mikill snillingur. Hvað varðar ummæli um að þú sért stór maður þá er ég að sjálfsögðu að meina “helmassaður”
Það er rétt hjá þér Stjáni það var smá hroki í Friðrik á láta þetta út úr sér. Ég var að hlusta á viðtal við Hann og Regínu þar sem hann var spurðúr út í þetta og hann viðukenndi að þetta var ekki rétt hjá honum að láta þetta flakka.
” Friðrik Ómar sagðist í gær ekki vilja fara nánar út í af hverju hann lét þau ummæli falla, hann hefði sagt þetta í hita leiksins.”
Þetta er brot úr grein sem má finna á mbl.is. Hann virðist sjá að sér en nú er rétt af honum að axla ábyrgð á því sem hann sagði, útskýra, biðjast afsökunar, segja af sér og gefa borgarstjó.. nei sorry eurovision sætið til næsta manns innan flokksins. Er það ekki það sem við heimtum þessa dagana??? Eða er ég kannski bara orðinn ruglaður af öllu þessu stjórnmálafári? Þetta er eflaust góður strákur en ég segi um hann eins og stjórnmálamenn, ef þú ætlar að starfa á opinberum vettvangi skaltu búast við fjölmiðlaumfjöllun og hugsanlega gagnrýni og þá er gott að hafa þykkan skráp, hvort sem þú heitir Friðrik eða Gísli.