Ég hef aðeins verið að renna yfir fótboltafréttir á fótbolta.net og þar eru fréttir sem ég vill aðeins tjá mig um. Þar eru reyndar pjakkar að rífast yfir hinu og þessu og ég ætla ekki að taka þátt í því. Eitt af þeim er um það hvort Nemanja Vidic hjá Man utd eða Skrtel hjá Liverpool sé betri. Varðandi það þá langar mig að benda á að á páskadag spiluðu Man Utd og Liverpool, sælla minninga. Þar fékk Skrtel á sig 3 mörk en Vidic ekki neitt.
Ég hef áður lýst yfir hrifningu minni á Nemanja Vidic hér á blogginu og honum til heiðurs hafa stuðningsmenn Man Utd samið lag. Þetta lag skal sungið við laglínu Volare með Gipsy kings og textinn er svona:
Nemanja vóóóó
He comes from Serbia
He’ll fucking murder ya!
Sannarlega orð að sönnu. Ég hef líka tekið saman árangur bæði Man Utd og Barcelona í meistaradeildinni þar sem þessi lið munu mætast í undanúrslitum. Ef við byrjum á Man utd þá var þeirra riðill svona skipaður:
Man utd
Roma
Dynamo Kiev
Sporting Lissabon
Man utd vann 5 leiki og gerði eitt jafntefli. Í fyrstu útsláttarumferð fengu mínir menn Lyon. Gerðu jafntefli á útivelli en unnu á heimavelli. Í næstu umferð fengu þeir Roma. Unnu þar bæði heima og úti.
Riðillinn sem Barcelona var í var svona skipaður:
Barcelona
Lyon
Stuttgart
Rangers
Barcelona vann einnig 5 leiki og gerði eitt jafntefli. Í fyrstu umferð fengu þeir Celtic og unnu bæði heima og úti. Í næstu umferð fengu þeir Schalke og aftur unnu þeir bæði heima og úti.
Athyglisvert er að velta fyrir sér hvaða leið bæði liðin hafa þurft að fara til að komast í undanúrslitin og lengi mætti deila um það hvor leiðin var erfiðari. Barcelona hefur unnið 9 leiki og gert eitt jafntefli á meðan Man Utd hefur unnið 8 leiki og gert tvö jafntefli.
Eitthvað að pæla í fyrir komandi rimmu en fyrsti leikur þessara liða er einmitt á afmælisdegi mínum þann 23. apríl n.k.
Flokkað undir: Manchester United | Tagged: Barcelona, Man utd, Meistaradeildin, Nemanja Vidic