Chelski komu öllum að óvörum með því að gera jafntefli við Wigan á heimavelli í gærkvöldi (ég veit að það er skrifað Chelsea) og eru þar með 5 stigum á eftir toppliði Manchester United þegar einungis fjórar umferðir eu eftir og 12 stig í pottinum. Chelskí menn eiga erfiðan leik fyrir höndum nú á fimmtudagskvöld þegar þeir sækja Everton heim. Að sama skapi á United erfiðan leik fyrir höndum um helgina þegar þeir spila við Blackburn á útivelli. Nú er rosalegt atriði að gera engin mistök. Nemanja Vidic er að koma aftur inn í liðið, Silvestre er kominn aftur, Gary Neville er kominn aftur og Nani er að verða klár. Hrikalega mikilvægt að vera með allan hópinn heilan fyrir lokasprettinn. Þriðjudagskvöldið 22. apríl er það svo Liverpool og Chelskí í meistaradeildinni og 23. apríl Barcelona – Man utd. 26. apríl verður svo einn rosalegasti leikurinn í deildinni háður og sá leikur gæti ráðið úrslitum um það hverjir verða enskir meistarar en þá koma mínir menn í heimsókn á brúnna heimavöll Chelskí. Sem betur fer get ég ekki horft á þann leik þar sem ég verð í veiðitúr og ég segi sem betur fer vegna þess að ég er ekki að höndla þetta spennustig. Ástríðan er það sem gerir leikinn skemmtilegri…….
Flokkað undir: Manchester United
Eins og segir í dægurlaginu: Lífið er yndislegt og sömuleyðis Manchester United