.. eru mínir menn og ég hef fulla trú… einu sinni enn… FULLA TRÚ á því að þeir vinni bæði deildina og meistaradeildina. Jafnvel þó það hafi ekki gengið alltof vel í síðustu leikjum. Ég skil það reyndar ekki með Barcelona leikinn af hverju Ferguson sagði þeim ekki bara að klára þetta. Skil það vel að hann hafi farið varlega í leikinn en þegar það kom í ljós að Barcelona gat ekkert þá hefði ég viljað sjá hann sækja, skora og go for the kill. Mín skoðun.
Sá ekki Chelsea leikinn þar sem ég var að veiða en ég er ekki ánægður með einhver slagsmál. Þá er bara að salta Barca á heimavelli og taka næstu tvo í deildinni, þá er þetta komið fyrir mig. Vona að við fáum Liverpool í úrslitaleiknum.
Flokkað undir: Manchester United | Tagged: Man utd, Meistaradeildin
sæll meistari
sammála með okkar menn í enska! tókum þetta á endasprettinum.
hvernig gekk annars í minnivallarlæknum?
Ég vil fá Chelsea í úrslitum og hefna fyrir þetta á laugardaginn. Alveg!
Þið takið deildina, en við POOLARAR ætlum okkur CL!!!