Eigum við að ræða þetta eitthvað?

 

Las blogg á netinu þar sem höfundur segir að Ronaldo sómi sér best í Man Utd þar sem leikaraskapurinn og stjörnustælarnir fái að njóta sín. Tekið skal fram að umræddur höfundur heldur með Loserpool. Reyndar, höfundinum til afsökunar, voru þessar línur skrifaðar áður en leikurinn í meistaradeildinni fór fram. Eigum við að ræða leikaraskapinn eitthvað?

Chelsea komið í úrslit í meistaradeildinni ásamt mínum mönnum og ég trúi því að við tökum þá, bæði í deild og meistaradeild. Ég geri mér grein fyrir því að Ronaldo hefur látið sig detta í gegnum tíðina en hvað þarf maðurinn eiginlega að gera til að fá dæmda vítaspyrnu? Rooney gerði þetta einu sinni og sýndi það fyrir öllum að hann er ekki sá karakter sem lætur sig detta, fékk gult spjald fyrir vikið og leikbann í kjölfarið. Efast um að við sjáum hann láta sig detta aftur. Í leik um daginn var brotið á honum inní teig en hann stóð það af sér en þeir sem voru að lýsa leiknum og í raun allir sem horfðu á leikinn sögðu að ef hann hefði látið sig detta hefði verið dæmt víti. Hvaða skilaboð er verið að senda? Ryan Babel lét sig detta með tilþrifum í gær, ekkert dæmt en ekki heldur gult spjald. Fleiri voru með leikaraskap í gær, Hyppia fór helvíti auðveldlega niður eftir snertingu frá Drogba. Talandi um Drogba.. eigum við að ræða leikarskapinn eitthvað? Bottom line, það gera þetta því miður allir leikmenn einhvern tímann jafnvel þó það sé óþolandi en við heimtum þetta líka stundum þegar það gæti hagnast liðinu okkar. Ronaldo er einfaldlega fljótur leikmaður og sem slíkur á hann heima í liði sem spilar á hröðu tempói, Man Utd, en ég held að púllarar og aðrir ættu að líta í eigin barm áður en þeir fara að hrauna yfir Ronaldo fyrir leikaraskap. Glory glory Man Utd….

Ein ummæli

  1. mér finnst frekar fúlt að púllararnir séu dotnir út, það hefði verið svo gaman að taka þessa vælukjóa og flengja þá.Þeir verða aldrei jafn stórir og við glori glori

Skildu eftir svar