Enska deildin

fjúff.. 4-1 fyrir mínum mönnum gegn West ham og sigurinn aldrei í hættu. Nú eru bara tvö lið eftir í baráttunni um England og Evrópu. Mig langar aðeins að gera upp deildina í vetur hjá mínum mönnum og velta fyrir mér næstu leikjum í deildinni. Ef ég renni aðeins yfir árangurinn gegn topp 4 liðunum í deildinni eins og staðan er í dag og byrjum á Liverpool. Þær viðureignir fóru 0-1 á Anfield og 3-0 á Old Trafford, sælla minninga. Samtals úr viðureignum liðanna í vetur 4-0 fyrir Man Utd.

Arsenal og Man utd gerðu jafntefli á Emirates 2-2 en mínir menn unnu á Old Trafford 2-1. Samtals 4-3 fyrir Man utd. Chelsea lágu á Old Trafford 2-0 en höfðu sigur á Stamford Bridge 2-1. Samtals 3-2 fyrir Man Utd. Ágætis árangur það úr 6 viðureignum við fjögur efstu liðin (og þá tek ég bikarleikinn gegn Arse ekki með), fjórir sigrar, eitt jafntefli og eitt tap samtals með markatöluna 11-5. Þetta var aldrei spurning.

Næstu leikir eru heldur betur spennandi. Arsenal hefur því miður hellst úr lestinni og eiga engan möguleika lengur á titlinum en Chelsea eiga enn séns. Næsti leikur Chelsea er gegn Newcastle á útivelli og ég á svo sem ekki von á erfiðum leik fyrir þá bláu þar sem Newcastle hefur ekki að neinu að keppa í raun og veru, sitja sem fastast um miðja deild og þurfa engar áhyggjur að hafa. Sömu sögu er að segja um Bolton sem með sigri á Sunderland í dag tryggði sér áframhaldandi veru í deildinni að ári en Chelsea á einmitt heimaleik gegn Bolton í síðasta leiknum. Sama dag á Man utd leik við Wigan sem hafði sigur á Aston villa í dag og gulltryggði sér í leiðinni veru í úrvalsdeildinni á næsta ári. Spurning hvernig sá leikur verður þar sem mínir menn verða að vinna til að tryggja sér titilinn en Wigan hafa að engu að keppa…. hhhmmmm athyglisvert. Newcastle hefur að engu að keppa og ekki Bolton heldur sem eru næstu keppinautar Chelsea. Nema kannski heiðurinn. Svo er það… Heiðurinn er alltaf að veði, það finnst engum gaman að tapa.

Nani í banni, Giggs og Park klárir á hægri kantinn. Ég vona að byrjunarliðið í næsta leik verði svona: Van Der Sar í markinu, Brown, Vidic, Ferdinand, Evra í vörninni, Scholes, Carrick, Park og Ronaldo á miðjunni, Rooney og Tevez frammi. Anderson, Hargreaves, Giggs á bekknum. Vona að mínir menn verði bara búnir að klára þetta í hálfleik með 2 frá Rooney, 2 frá Tevez og 2 frá Ronaldo. Ferguson skipti Rooney, scholes og Ronaldo útaf í hálfleik og setji Giggs á hægri kantinn, Anderson á miðjuna og Hargreaves á miðjuna. Spili með 5 manna miðju og Tevez einan frammi. Svo vill ég fá eitt frá Anderson þar sem hann á það svo sannarlega skilið eftir frábæran vetur.

Ég er kominn útí dagdrauma hérna en svona vill ég sjá þetta um næstu helgi.

Skildu eftir svar