Ég er gallharður stuðningsmaður Manchester United sem mér finnst vera allra besta fótboltalið í heimi. Fyrir mér er Man Utd meira en bara lið og fótbolti meira en bara leikur, þetta er ástríða. Þetta er hin mesta skemmtun og það besta er að þetta fer allt saman fram á veturna þegar veiðitímabilinu er lokið (reyndar skarast þetta tvennt á haustin og vorin). Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að ég er líka ástríðufullur veiðimaður svo að þetta hentar mér vel að hafa veiðina á sumrin og fótboltann á veturna.
Ég er hins vegar að sama skapi mjög ófullkominn þegar kemur að því að horfa á fótbolta og ég læt skapið oft fara með mig – ég er eiginlega ekki húsum hæfur þegar United eru að spila. Spennan fyrir þennan síðasta leik er að fara með mig og ég treysti mér einfaldlega ekki til að horfa. Ég ætla að flýja í sumarbústað og passa mig á því að vera að veiða þegar leikirnir fara fram. Það er ekki það að ég treysti mínum mönnum ekki til að vinna leikinn, ég bara treysti ekki líkamanum til að ráða við spennuna á meðan leiknum stendur, hvað þá sigurvímunni ef United vinnur. Nú ég segi EF þeir vinna þar sem ég trúi því að ég “jinxi” leikinn ef ég er of kokhraustur. Ég hef hins vegar fulla trú á Manchester United og mun alltaf hafa trú á þeim alveg sama hvernig fer. Ég segi bara GLORY GLORY MAN UTD og reyni að dreifa huganum við veiðar um helgina svo að ég fái ekki taugaáfall, ég kem svo með pistil um veiði helgarinnar á mánudag/þriðjudag.
Flokkað undir: Manchester United, Pælingar, Veiði | Tagged: Man utd
Mig dauðlangar að sleppa leiknum og fá bara útkomuna strax að leik loknum. Ég man nefnilega eftir leiknum gegn West Ham í lokaumferðinni 1995 þar sem United lá í sókn í 90 mínútur en gerði samt 1-1 jafntefli. Og tapaði þar með titilinum til Blackburn. Horfði á leikinn á Glaumbar og stemmningin þar var mjög súr.
En svo er náttúrlega svo yndislegt að vinna svona leiki; 90 mínútur af “constant pleasure”!!! Svona er lífið…
PS: Síðustu 6 leikir United og Wigan….
United unnið 6 af 6, sem þýðir að Wigan hefur tapað 6 af 6.
Markatalan 20:3 fyrir United, sem gerir meðalúrslit ca. 3,3 mörk gegn 0,5.
Þetta þýðir bara eitt: …. ég hef ekki hugmynd um hvernig leikurinn endar!
Þú þekkir það hvernig ég er og ég bara get þetta ekki núna. Ég ætla að horfa á úrslitaleikinn í Meistaradeildinni en þennan get ég ekki horft á.
Wigan hafa að engu að keppa og það hlýtur að vera erfitt að mótivera leikmenn í svoleiðis leik. Svo er það reyndar þannig að þeir fá meiri pening ef þeir vinna. En það fær United líka, og heiðurinn, og bikarinn.
Stand up for the champions!!!
Gott að heyra að við bræður eru ekki þeir einu sem gjörsamlega missa sig við að horfa a leik með Man.Utd.
Það hefur nefnilega oft komið fyrir að það er bankað upp hjá okkur þegar
við horfum á leikinn heima hjá okkur og spurt hvort sé ekki allt í lagi.
Ég er ekki viðræðurhæfur ef illa fer fyrir mínum mönnum, sem betur fer
gerist það ekki oft.
Við verðum hreinlega að vinna þennan leik, og munum við feðgar halda uppi merkjum okkar manna á næsta bar og öskra úr okkur raddböndin.
Til Hamingju Kúturinn minn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!