Glory glory Man utd, glory glory Man utd, glory glory Man utd, as the reds go marching on on on…..
Hversu sætt það er að vinna á stigum en ekki markatölu. Hversu sætt það er að vera meistarar.
Þegar skrifað er um sögu úrvalsdeildarinnar er sagt “The most successful team in Premier league history is undoubtedly Manchester United. Alex Ferguson’s side have won a remarkable nine titles [correction, ten titles] and have never finished below third since the premier league was launched in 1992″
Ég sá ekki síðasta leikinn af títt nefndum ástæðum. Ég var þess í stað staddur við fallegt stöðuvatn í þeirri von að fá urriðatitti til að heillast af flugu minni. Ég get þó ekki horft framhjá þeirri staðreynd að Manchester United tryggðu sér í gær tíunda titil sinn á þeim 16 árum sem Úrvalsdeildin hefur verið starfrækt. Blackburn á einn titil, Arsenal þrjá og Chelsea tvo. Samtals hafa fjögur lið unnið Úrvalsdeildina síðan hún var stofnuð, Manchester United, Arsenal, Blackburn og Chelsea….. Sér einhver hvert ég er að fara með þessu?
Fylgist með veidimenn.is….
Flokkað undir: Manchester United | Tagged: úrvalsdeildin, Man utd, meistarar
Gaman að sjá að Liverpool er enn ekki búið að vinna Premership deildina, og virðast ekkert vera á leiðinni að gera það.
Glory Glory Man.Utd