Hvítasunnuhelgin – Skorradalur

Ég er mikið á ferðinni þessa dagana og vonandi gefst mér tími til að færa fréttir úr þeim landshlutum sem ég heimsæki hingað inn. Var að koma úr Skorradal þar sem ég var við veiðar og í almennu afslappelsi. Henti inn myndum úr þeirri ferð á veiðimyndasíðuna. Ég er að fikta mig áfram með myndirnar og er að velta því fyrir mér hvort ég eigi ekki bara að setja þær hérna inn líka, þ.e.a.s. í póstana í staðinn fyrir að linka alltaf inn á myndirnar á myndasíðunum. Mér finnst svo vont að hafa myndirnar þarna einar og sér og engin saga fylgir þeim. Mig langar að hafa það þannig að ég geti sagt sögur með hverri mynd, hvar hún var tekin og við hvaða tilefni. Ef myndir eru af fiskum þá hvað hann var stór, hvað hann tók og hvar. Eitthvað í þessa átt.

Þessi mynd hérna að ofan er t.d. af kærustunni minni í nýju vöðlunum sínum að æfa sig að kasta flugu við Skorradalsvatn um helgina. Er að skoða þessi mál og kippi þessu vonandi í liðinn fljótlega. Er að fara í mjög spennandi ferð á morgun og verð vonandi með sjóðheitar fréttir á föstudag. Mjög spennandi ferð…. svo það sé alveg á hreinu.

Fylgist með veidimenn.is

Ein ummæli

  1. [...] er hér. Nokkrum dögum seinna fórum við og náðum kvótanum í Reynisvatni. Urriðakotsvatn, Skorradalsvatn, Minnivallalækur og Staðará á Snæfellsnesi voru heimsótt ásamt því að ég veiddi í [...]

Skildu eftir svar