Bætti við flóðatöflu Easy tide í tenglana hjá mér. Mér finnst þessi tafla fín og hægt er að fá viku töflu í senn, frítt. Hafa verður þó í huga að þetta er spá sem getur skeikað um einhverjar mínútur og þess vegna er ágætt að vera bara mættur tímanlega.
Fyrir þá sem ekki sjá notagildið í svona töflu þá set ég hana inn fyrir þá sem eru að fara í ósaveiði. Oft er besta veiðin á ákveðnum tímum svo sem rétt fyrir liggjandann, á liggjandanum, þegar er að fjara út eða flæða að og þá er gott að vita klukkan hvað þetta á sér allt saman stað. Þannig er hægt að nýta tímann betur við veiðar.
Filed under: Veiði Tagged: | ósaveiði, easy tide, flóðatafla, sjóbleikja
Sælir og takk fyrir síðast. Fann þig hérna í leit minni að flóðatöflu. Stendur LW og HW fyrir fjöru og flóð? Hélt kannski að það væri ölduhæð? Er að fara í kræklingatínslu, helst á háfjöru
Kv. AÞ
Hlaut að vera að ég fyndi þetta hjá þér. Gekk ekkert að finna þetta fyrr en ég sá bloggið þitt
Kv. Andri