Eins og hér hefur margoft komið fram er ég mikið á ferðinni þessa dagana. Skorradalur – Hornafjörður – Landsveit og nú næst er það Snæfellsnes. Í kvöld er ég að fara í Staðará á Snæfellsnesi að reyna við sjóbleikju með Valda vini eins og hann er oft kallaður. Ég veiddi mikið af sjóbleikju í Fögruhlíðarós í fyrra og þá voru það hvítar straumflugur á mjög hröðu strippi sem gáfu best. Súddi, aðalmaðurinn í Breiðdal, sagði mér að byrja að strippa hægt, auka svo hraðann og alveg blóðstrippa í lokin. Þetta líka svínvirkaði og ef maður gerði þetta ekki þá eltu þær oft alveg að manni án þess að taka. Ég er að vona að þessi aðferð virki líka í Staðará þar sem tökurnar voru hreint út sagt geðveikar með þessari aðferð. Ég verð svo með ferskar fréttir af þessari ferð annað kvöld. Stutt stopp í Staðará (gæti verið fyrirsögn í Séð og heyrt).
En í nótt dreymdi mig draum og það var góður draumur. Eins og glöggir aðilar hafa kannski rekið augun í þá verð ég við veiðar í kvöld þegar úrslitaleikurinn í Meistaradeildinni fer fram. Fyrir þessu eru tvær ástæður. Önnur er sú hversu spenntur ég er fyrir leiknum og hef þess vegna ekki taugar til að horfa en hin er sú að mér var boðið last minute að koma í Staðará og mig hefur lengi langað að veiða þarna. Ég veit, ég veit, ég veit. United er í úrslitum og allt það. Ég er GALLHARÐUR Manchester United aðdáandi og ég skrifa þetta undir tónum Take me home United road EN ég er líka hrikalega ástríðufullur og sem slíkur á ég það til að missa stjórn á skapi mínu yfir leikjum og af þeim sökum er líklegast best fyrir alla að ég fari bara að veiða. En aftur að draumnum….. Mig dreymdi það í nótt að ég var að veiða og sá að klukkan var rúmlega 21:00 og hringdi því í kærustuna mína til að heyra hvernig leikurinn fór en ekkert gekk að ná í neinn úr fjölskyldunni svo að ég hringdi þá í Gumma vin minn sem einnig er gallharður United maður. Hann sagði mér að United hefðu unnið leikinn 1-0 með marki frá Ronaldo í fyrri hálfleik, nánar tiltekið á 27. mínútu. Ég vaknaði mjög glaður en varð svo svekktur þegar ég áttaði mig á því að þetta var bara draumur. ENNNNN ef united vinna leikinn í kvöld 1-0 með marki frá Ronaldo á 27. mín, þá vill ég minn eigin sjónvarpsþátt eins og gellan í Medium. Hugsið ykkur hvað væri hægt að græða á Lengjunni…. Glory glory Man utd
Flokkað undir: Manchester United, Pælingar, Veiði | Tagged: Man utd, Meistaradeildin, Ronaldo, sjóbleikja, Staðará
Vonandi rætast þínir draumar og man.utd vinnur 1-0
En hjá mér er það svoleyðis að mér verður að dreyma að man.utd tapi og þá vinna þeir, og þar sem mér dreymdi ekkert um fótbolta í nótt þá verður líklega framlengt, og guð minn góður það er eitthvað sem ég ræð ekki við, 90.mín eru alveg nóg.
Við verðum einfaldlega að vinna þetta í kvöld það yrði skandall ef Chelsky mundi loksins fá meistaradeildar dollu.