European glory

Manchester United eru Evrópumeistarar og ég get ekki lýst gleðinni sem einkennir líf mitt þessa stundina. Var að koma heim úr Staðará á Snæfellsnesi, sólbrúnn og sætur. Nenni ekki að skrifa um ferðina núna en reikna með að ég sendi greinina á veidimenn.is. Í fáum orðum…. Lentum í algjöru moki á Bleik og blá og marflær. Náðum einum birting og nokkrum tugum af bleikju. Tókum tvær bleikjur og birtinginn með okkur heim. Henti inn myndum á Veiðimyndir. Meira seinna..

Skildu eftir svar