En gerir það að verkum að ég hef ekki tíma fyrir bloggpóstana. Ég er langt kominn með skýrsluna úr Staðará en er að buffa hana inn á Word. Ég er hins vegar á leið út úr bænum í fyrramálið og stefnan er tekin á Minnivallalæk. Þar ætla ég ásamt tveimur öðrum starfsmönnum að bera á veiðihúsið og pallinn, týna rusl við ána og dytta að hinu og þessu í leiðinni. Kem aftur á fimmtudag með myndir og einhverjar fréttir… já alveg rétt… Vonandi gefst einhver smá tími til að bleyta flugurnar okkar þarna í leiðinni.
Talandi um að bleyta flugur… Eða nei! Reyndar ekki… Talandi um að kasta flugum eða öllu heldur kasta flugulínum, þá erum við hjónakornin á kastnámskeiði þessa dagana og mig langar að taka smá tíma frá til að benda mönnum á þetta dæmi. Þannig er mál með vexti að ég sá mér ekki fært að kenna kærustunni minni að kasta flugu og okkur fannst best að hún færi á námskeið. Mig langaði líka til að læra almennilega að kasta tvíhendu og því ákváðum við að skella okkur á námskeið. Á sama tíma og þetta var ákveðið komu fréttir af því að Hilmar nokkur Jónsson væri kominn með kastkennaragráðu frá Federation of flyfishers (huh??). Ég sá á veidi.is að mennn voru eitthvað að ræða námskeið og þar kemur Hilmar fram og gefur upp e-mailið sitt. Ég sló til og hafði samband og nú erum við hjónin búin með þrjá tíma hjá honum. Vorum uppi á Hafravatni í dag til að æfa veltiköst og eitthvað svoleiðis á vatni þar sem við erum búin með tvo tíma á túni. Ég verð bara að segja það að mér finnst Hilmar alveg stórkostlegur kennari og hann hefur kennt mér svo mikið, bæði með einhendunni og tvíhendunni. Hann er meiriháttar skemmtilegur og frábær kastari og við hjónin getum bæði hiklaust mælt með honum við hvern sem er, bæði byrjendur og lengra komna. Og ég er ekki beðinn um að segja þetta. Hana nú!! Við getum öll lært meira. Meilið hjá honum er himmi@mail.com
Flokkað undir: Pælingar, Veiði, fluguveiði | Tagged: federation of flyfishers, Hilmar Jónsson, kastkennaragráða, kastnámskeið