Eitt og annað – nýr tengill

Ég var að setja inn nýjan tengil á mjög skemmtilegt blogg um veiði á ensku. Þetta eru gæjar sem vinna fyrir AEG media sem gera m.a. veiðimyndir svo sem Trout bum diaries og núna fish bum diaries. Þessi kappar komu hingað til lands 2005 og veiddu m.a. í Minnivallalæk. Hér er tengill á smá myndband úr þeirri ferð þeirra kappa.

Ég er í því að setja inn fítus á bloggið sem gerir mér kleift að birta myndbönd frá hvaða síðu sem er svo að fljótlega get ég hent inn skemmtilegum myndböndum ef ég rekst á þau á vafri mínu um netið. Ég er ekkert að setja inn veiðifréttir sem menn geta skoðað á öllum öðrum veiðisíðum þar sem sjálfur þoli ég ekki að sörfa veiðisíðurnar og þær eru allar með sömu helv…. fréttina á forsíðunni hjá sér. Hérna vill ég hafa frumlegt efni ef ég mögulega get og ég get upplýst það að ég er búinn að vera í viðræðum við menn um að fá hjá þeim mjög skemmtilegt efni að birta á síðunni. Það er bara bjart framundan og ég er að sanka að mér efni.

Ég er byrjaður með sömu síðuna og þessa nema bara á ensku. Forsagan að því máli er sú að ég er eins og margir vita í námi við Háskólann á Hólum að læra ferðamálafræði. BA verkefnið mitt mun snúast um silungsveiði og ég er að gera tilraunir með þessa síðu mína á ensku til að kynna veiði á Íslandi fyrir erlendum aðilum. Ég er á þeirri skoðun að við eigum ekki að vera hrædd við að fá útlendinga hingað að veiða heldur eigum við að fagna því þar sem þeir skilja mikið eftir sig hér á landi. Að sama skapi gæti það vakið athygli manna á því hversu mikilvægt sport stangveiðin er öllum til hagsbóta. Hér er linkur á síðuna á ensku.

Sjálfur er ég spenntur fyrir Steelhead veiði ef hún er eitthvað eins og þessar myndir hjá þeim piltum hjá Trout bum diaries sýna. Kíkið á þetta.

Skildu eftir svar