Er kjörorð Breiðdalshrepps og þar eru orð að sönnu. Hér er hreint út sagt frábært að vera og náttúrufegurðin lætur engan ósnortin. Ég er hingað kominn að vinna og veiða og eins og ég lofaði í stuttum póst í gær er ég búinn að setja inn myndir. Setti inn myndir af bleikjunum sem Súddi fékk um daginn og þegar ég sagði honum af því að ég ætlaði að setja myndir af þeim frosnum í poka lét hann mig hafa myndir frá sér til að setja inn. Þegar ég svo fór að gramsa í myndunum hans fann ég myndir af flugunum sem hann hefur hannað og notar mikið í bleikjuna hérna. Setti þær myndir líka inn og ættu einhverjir áhugasamir fluguhnýtarar að geta nýtt sér þessar myndir en ættu þó að athuga að allir kúluhausarnir eru tungsten kúlur þar sem þessar flugur eru hannaðar til að fara djúpt á stuttum tíma.
Við fórum á fjörunni í gær niður að ós og bleyttum færi. Vorum þrír saman og svo voru tveir aðrir. Fengum fjórar bleikjur og misstum fleiri á hinar ýmsu flugur. Ég verð hérna eitthvað frameftir vikunni svo að ég hendi inn fréttum af aflabrögðum um leið og þær berast.
Flokkað undir: Stjáni Ben, Veiði, fluguveiði | Tagged: bleikjuveiði Breiðdalsá, Breiðdalsá, flugur, Súddi
Thad er fylgst med ther utan ur heimi!
Bestu kvedjur fra Hrvatska.
Gummi