Hvernig ekki á að tækla kvartanir

Síðustu fjögur eða fimm skipti sem við höfum tekið okkur DVD mynd hefur verið einhvers konar truflun í myndinni og í öll skiptin hef ég ætlað að segja eitthvað við videoleiguna en aldrei gert. Í gær skilaði ég mynd sem var hrútleiðinleg og var með einhverri skemmd í disknum. Myndin er glæný og heitir We own the night og greinilegt að diskurinn hefur skemmst í framleiðslu eða eitthvað álíka. Það var vel hægt að horfa á myndina en samt hrikalega pirrandi að hafa þessa truflun inní miðri mynd. Þegar ég skilaði myndinni var ég ákveðinn í að segja eitthvað við eigandann og sem betur fer var hún að vinna. Ég kom að borðinu og bað um að fá að tala við hana “já bíddu aðeins” var svarið sem ég fékk. Eigandinn stóð og spjallaði við annan starfsmann á meðan fólk beið eftir afgreiðslu því það var aðeins einn starfsmaður að vinna. Þegar eigandinn loksins kom að tali við mig spurði ég hvort hún væri ekki aðalmanneskjan þarna og hún jánkaði því. Ég tók það strax fram að ég væri ekki að biðja um neitt en mig langaði að segja henni að síðustu 4-5 skipti sem ég hefði tekið mynd þarna hjá þeim þá hefði verið einhver truflun í myndinni og þar á meðal þessari. Hún fór strax í vörn og reif upp hulstrið til að tékka á disknum og sagði strax að það væri ekkert að disknum!!! “Það er bara eitthvað að spilaranum ykkar” sagði starfsstúlka sem hafði hlerað samtal okkar. Ég tók það aftur fram að ég væri ekki að biðja um neitt svo að þær gætu slakað á vörninni ég væri bara vinsamlegur viðskiptavinur að láta þær vita af gallaðri vöru sem þær væru að selja en samt sem áður fékk ég svona skítaviðmót. Ég á eftir að versla þarna aftur vegna þess að ég nenni ekki að fara langt eftir DVD myndum og þessi sjoppa er í nágrenninu en mig langar þó að taka ýmislegt fram.

1. Fagnaðu kvörtunum. Þeir sem kvarta eru að hjálpa þér að haga þjónustu þinni betur til framtíðar. Betri þjónusta, meiri viðskipti.

2. Ekki kenna viðskiptavininum um, hann hefur alltaf rétt fyrir sér (jafnvel þó hann hafi rangt fyrir sér)

3. Ekki segja “þetta er bara….” án þess að hafa hugmynd um málavexti. Segðu frekar “já er það?, ég biðst afsökunar og ég skal skoða málið. Takk fyrir að láta mig vita” . Jafnvel þó þú gerir ekkert í málinu þá finnst kúnnanum hann allavega hafa lagt sitt af mörkum.

4. Bjóddu bætur ef þér finnst það eiga við.

5. Bjóddu sanngjarnar bætur. Hvað er viðskiptavinurinn búinn að þola?

Tökum þetta dæmi mitt. Ég var kominn heim með pizzu og búinn að skríða uppí sófa, nýkominn heim úr löngu ferðalagi. Ég hlakkaði mikið til að horfa á myndina og njóta þess að liggja uppí sófa. Ég var búinn að hafa fyrir því að koma í sjoppuna, velja mynd, borga og það allt, bara til þess að koma heim og komast að því að varan sem ég keypti var gölluð. Hverjar eru þá sanngjarnar bætur?

Ég tók það fram að ég væri ekki að biðja um bætur. Sama dæmi í Bónusvideo á Akureyri. Ég kom að skila DVD mynd sem var með truflunum og sagði stelpunni sem var að afgreiða. Hún bauð mér strax fría spólu en ég sagði henni að ég ætti ekki heima á Akureyri svo að ég gæti ekkert nýtt mér það. Hún bauð mér þá að eiga hana inni en ég afþakkaði.

Skildu eftir svar