Þessa dagana fer lítið fyrir veiði þar sem fótboltinn hefur tekið yfir en ég bæti úr því á allra næstu dögum og kem þá með ferskar fréttir. Það er þó ýmislegt sem á mína daga drífur þessa dagana og skemmst er frá því að segja að ég og Zakarías, strákurinn hennar Guðrúnar fengum verðlaun fyrir bestu nýtingu vallar á Búðir Open nú á föstudag. Búðir open er árlegt golfmót starfsmannafélags Ríkiskaupa og var haldið á föstudag á Álftanesvelli. Fórum við félagarnir 9 holur á 52 höggum og var langt í næsta par en leikið var eftir Texas scramble fyrirkomulaginu.
Á laugardagsmorgun vorum við vakin af vinnuvélum rétt fyrir utan gluggana hjá okkur en þá var verið að rífa upp gangstéttina. Var þar komin grafa og stór trukkur að taka við því sem gröfunni tókst að grafa upp og voru þessi tæki alveg búin að loka götunni. Við höfðum enga tilkynningu fengið um þessar framkvæmdir og ég hringdi og kvartaði. Stuttu seinna voru þeir farnir. Í dag fóru þeir aftur að vinna með sömu aðferðum. Seinni partinn rofnar svo net- og símasamband á heimilinu svo að ég rölti út til að kanna hvað málið væri. Þeir voru búnir að slíta símastrenginn. Ég reyndi ítrekað að hringja í Reykjavíkurborg en fékk sama símsvarann í rúman hálftíma “því miður eru allir þjónustufulltrúar uppteknir, símtölum verður svarað í þeirri röð sem þau berast”. Þótti mér orðið greinilegt að einhver hafði gleymt að beina símtölum í annan símsvara áður en allir af skrifstofunni fóru heim. Ég hringdi í Mílu sem á strenginn og þar fékk ég símsvara “Skrifstofan er opin bla bla bla en við bendum á heimasíðuna bla bla bla” og svo rofnaði símtalið. Frábært! En hvað gerir maður ef maður kemst ekki á netið?
Ég hringdi í hverfamiðstöðina og fékk þar loksins manneskju í símann. Sá vissi ekkert um neitt en sagði mér að framkvæmdirnar væru á vegum Reykjavíkurborgar og Orkuveitunnar. Ég hringdi í Orkuveituna eða nánar tiltekið bilanavakt og sleppti mér á þann sem svaraði. Sá furðaði sig á því að ekki væri búið að láta hann vita af slitnum streng og að það væri hlutverk þess sem sleit strenginn. Miðað við svipinn á þessum snillingum sem stóðu yfir slitnum streng þegar ég kom þar að stuttu áður voru ekki miklar líkur á því að þetta hefði verið tilkynnt í bráð. Hann lofaði bót og betrun.
Skömmu síðar kemur kátur keflvíkingur á staðinn og reddar málunum (aldrei heyri ég í Séð og Heyrt). Nú er netið komið og alles klar. Fékk meira að segja símtal frá Mílu í kvöld.
1. Ef þú ert með símsvara ekki gleyma að láta fólk vita hvar það er í röðinni (Reykjavíkurborg).
2. Ef þú ert með símsvara sem tekur við símtölum eftir lokun ekki gleyma að beina símtölum þangað (Reykjavíkurborg).
3. Láttu dygga þegna þína vita af framkvæmdum fyrirfram svo þeir geti tekið viðeigandi ráðstafanir (Reykjavíkurborg).
Flokkað undir: Pælingar | Tagged: búðir open, golf, míla, orkuveitan, ríkiskaup, reykjavíkurborg, texas scramble
