Stjáni á ferðinni – Lax kominn á Jöklusvæðið??

Var að koma í hús eftir seiðarúnt í Breiðdalinn og planið er að fara aðra ferð á morgun svo að ég hef ekki tíma til að skrifa mikið. Þegar ég kem tilbaka er ég með sjóðheitar fréttir sem ég þarf þó að fá frekari heimildir fyrir en fyrstu drög segja að lax hafi sést á Jöklusvæðinu í dag. Ef þessi orðrómur reynist réttur eru það mjög spennandi fréttir. Kem með “skúbbið” eftir næstu ferð í Breiðdalinn. Tók mikið af myndum út um topplúguna á bílnum mínum á leiðinni heim og ætla að skella inn nýjum myndaflokk “Teknar út um topplúguna”.

Ég var líka að fá sendar myndir frá Lárusi Karli Ingasyni sem ég ætla mér að birta hérna. Þarf að fikta aðeins í síðunni áður en ég get gert þessum flottu myndum nægjanlega skil. Hendi tveimur bara svona sem forsmekk.

Skildu eftir svar