Söknuður

Ég er fullur af söknuði. Mér líður sem hálfum manni. “Hvað gerir þig svona dapran?” gæti einhver spurt og það er nánast of kvalafullt að svara án þess að bresta í grát. Tölvan mín er biluð!!! Ég er niðurbrotinn. Ég var að tala við Tölvuvirkni til að spyrjast fyrir um líðan hennar en eina svarið sem ég fékk var “hún hefur verið send til umboðsaðila”. Guð minn góður!!! Hvað þýðir það? Hvar get ég komist að því hvernig henni líður? Getur einhver sagt mér hvað er að? “Það er ekki vitað en það er verið að gera allt sem hægt er að gera fyrir hana. Þú verður látinn vita”.

Öllu gamni sleppt þá er tölvan mín biluð og ég fæ hana ekki í bráð. Ég velti því fyrir mér hvers vegna ég fékk sting í magann þegar tölvugæjinn í Tölvuvirkni sagði mér þetta í símann áðan. Er tölvan mín mér svona kær? Jú það verður eiginlega að segjast alveg eins og er að ég er mjög háður henni og líður ekki vel þegar ég hef hana ekki við hendina. Ég er að fara í burtu í langan tíma og ég verð hreinlega að hafa hana. Fær mig til að hugsa hversu hrikalega háður tækjunum mínum ég er. Mér verður óglatt yfir tilhugsuninni um að týna símanum mínum. Að hugsa um einhvern annan að fikta í honum. Mér líður eins vitandi af einhverjum tölvugúrúinum að fikta í tölvunni minni. ÚFFFFFF…..

Lífið gengur sinn vanagang en þar sem ég hef ekki tölvuna við hendina er ég ekki eins duglegur að blogga. Ég hef enn ekki farið að veiða sjálfur þannig að ég hef engar ferskar veiðifréttir. Ég er þó að fara austur á land á morgun eða hinn til að veiða á Jöklu svæðinu og þar á meðal í Fögruhlíðarós. Konan mín er búin að vera hrikalega dugleg að hnýta fyrir þessa ferð og ég er klár með 70 sjóbleikjuflugur af öllum stærðum og gerðum til viðbótar við það sem ég átti fyrir. Ég á sannarlega yndislega konu. Ég kenndi henni að hnýta núna í vor og hún er strax orðin miklu betri hnýtari en ég svo að það er best að hún hnýti flugurnar fyrir okkur.

Ég verð í burtu núna í c.a. tvær vikur og verð mikið á ferðinni á þeim tíma bæði að veiða sjálfur og leiðsegja öðrum veiðimönnum. Eitthvað stoppa ég þó í Breiðdalnum og stelst þá vonandi í tölvuna hjá Súdda vini mínum og hendi inn ferskum fréttum og myndum frá Jöklu svæðinu. Þangað til.. lifið heil.

Skildu eftir svar