Fréttir úr Skagafirði

Nú sit ég sveittur, sólbrúnn og syngjandi á hótelganginum með fartölvuna í fanginu. Veðurblíðan er búin að gera veiðimönnum lífið leitt en það er samt alveg ótrúlegt hvað menn geta kennt veðrinu um. Ég efast um að veiðimaður eigi nokkurn tíma eftir að segja “ég er bara svona lélegur veiðimaður, þess vegna veiði ég ekkert”. [...]

Smá fréttaskot – mynd af flottum urriða

Sit hérna í tröppunum í ganginum á Hótel Varmahlíð með tölvuna á hnjánum. Ég er búinn að vera að leita uppi þráðlaust internet og komst loks í feitt. Gat ekki beðið með að henda inn myndum af urriðahlunknum sem einn af gestum mínum í Minnivallalæk fékk. Ég læt myndirnar tala sínu máli í bili en [...]

Skyldan kallar

Jæja þá er kominn tími til að fara að vinna. Næstu daga verð ég við störf í uppáhalds ánni minni, Minnivallalæk að sýna erlendum veiðimönnum hvar helst er að hitta á stóra urriða. Gæti það verið betra??? Þaðan er stefnan tekin á Húseyjarkvísl í Skagafirði þar sem planið er að leyfa öðrum að sýna en [...]

Brúará fyrir landi Haga – Þrír urriðar en enginn lax!

Lagði af stað úr bænum eldsnemma í gær og hélt til veiða í Brúará fyrir landi Haga. Veiðisvæðið sem um ræðir tekur til Brúarár sjálfrar sem og Hagaóss sem er smá árstubbur sem rennur úr Apavatni og í Brúará. Þegar ég kom á staðinn kíkti ég í veiðibókina og sá að það voru komnir 3 [...]

Enn bætast við myndir – Púpu snillingur í Minnivallalæk

Jæja þá eru komnar inn fleiri myndir frá þessum erlenda snilling sem var að veiða með mér í Minnivallalæk um daginn. Setti þær í möppuna Minnivallalækur 2008. Mig langar að staldra aðeins við og segja örlítið frá þessum gæja þó svo að ég ætli nú að virða nafnleynd við hann allavega fyrst um sinn. Ég [...]

Enn eitt myndbandið

Þetta sinn er það úr Minnivallalæk.. Ég veit, ég veit þetta fer að verða þreytt með Minnivallalækinn en ég bara fer svo mikið þangað og luma á svo mikið af alls konar videoklippum héðan og þaðan. Gaman að henda þessu saman í eitthvað smá myndskeið og deila því með ykkur. Svo er ég líka að [...]

Myndband úr Breiðdalsá – Fleiri stórlaxar

Jæja ég er víst ekkert skárri en hinir veiðivefirnir, ég er bara með sömu fréttirnar og þeir. Ég hins vegar er jafnvel að hugsa um að vera ekkert að vesenast með að minnast á þessa stórlaxa sem veiddust í Breiðdalsá í gær heldur setja bara inn hlekkinn á skemmtilegt video sem birt var á vefnum [...]

Fleiri myndir – Komnar í “möppur”

Jæja þá fattaði ég loksins hvernig ég kem myndunum í möppur… eða öllu heldur hálfgerðar möppur. Bætti við enn fleiri myndum sem ég átti á lager og held áfram á morgun. Kíkið á þetta….

Myndir frá Nico de Boer

Ég sagði frá því í gær að ég hefi fengið sendar myndir frá Hollenskum blaðamanni sem var hér við veiðar ekki alls fyrir löngu. Hann sendi mér myndir í gær en vildi ekki gefa leyfi á að birta þær hér alveg strax og ég virti það við hann. Í morgun fékk ég hins vegar tölvupóst [...]

Jæja.. eitt og annað

Var að fá sendan geisladisk í pósti fullum af myndum en fékk því miður ekki leyfi til að setja þær á síðuna alveg strax en fékk þó leyfi til að nota nokkrar þeirra. Þannig er mál með vexti að það var Hollenskur blaðamaður við veiðar á Íslandi ekki alls fyrir löngu og hann var meðal [...]