Breiðdalsár opnun – Update

Jæja ég hljóp aðeins á mig í gær þegar ég sagði frá opnuninni hér í Breiðdal. Ég sagði að veiðst hefðu 9 laxar frá 3-14 pund en hið rétta er að það veiddust 9 laxar frá 3-15 pund!!! 90 cm hrygna gaf sig um kvöldmatarleytið í gær og samkvæmt veiða-sleppa töflu Veiðimálastofnunar eru 90 cm fiskar 7,4 kg.

Ég kom hingað í gærkvöldi eftir að hafa eytt fjórum dögum við veiðar í snarvitlausu veðri á Jöklusvæðinu. Tvo daga vorum við Dóri smiður að veiða bara tveir í rólegheitunum en í tvo daga var ég með erlenda gesti við veiðar þarna. Fyrsta kvöldið var ég bara einn og fór þá í fjöruna um kvöldið. Byrjaði þó á bjartsýnisfullri leit að laxi í Fögruhlíðará en hafði ekki erindi sem erfiði. Fór snemma í fjöruna og gafst upp snemma fyrir veðrinu en hafði tvær bleikjur uppúr krafsinu. Þar sem ég er yfirleitt búinn að vaða langt út þarna á ósasvæðinu er ég yfirleitt með háf á mér og er því ekki að taka myndir því ég sleppi þeim bara úr háfnum. Þó hafði ég gleymt háfnum eitt skiptið og tók því myndir af seinni bleikjunni þegar ég var að vaða með hana í land.

Daginn eftir á fyrri fjörunni náðum við 7 bleikjum þar af þremur á flugu sem ég skýrði GKG special í höfuðið á yndislegu kærustunni minni sem hnýtti hana og “hannaði” (maður er að fara full frjálslega með þetta hugtak á þessum síðustu og verstu). Eftir staðgóðan hádegisverð fórum við Dóri að skoða okkur um þarna á þessu víðfema svæði og fundum fallegan sjóbirting sem tók GKG special í Laxá í Jökulsárhlíð. Rótuðum upp fleiri bleikjum á fjörunni áður en Dóri fór aftur í Breiðdalinn og ég tók á móti gestum.

Kolvitlaust veður gerði okkur erfitt fyrir þessa tvo daga en ég sá bleikjur í Kaldá og annar gestanna minna náði tveggja punda bleikju í Laxá á……… en ekki hvað GKG special!!!!

Samtals tók GKG Special 8 bleikjur og einn sjóbirting í þessum túr og stimplaði sig inn sem góð veiðifluga. Tek myndir af henniu þegar ég kem heim og set inn. Ég verð hérna fram á föstudag en hér rignir mikið og áin í flóðum sem stendur. Ég vona að hún nái að hreinsa sig hressilega áður en ég fer heim þar sem ég á að reyna við laxinn hérna í tvær vaktir á morgun og hinn. ÉG hef trú á því að þeir sem koma að veiða hérna í júlí eigi eftir að lenda í mikilli veislu hérna í Breiðdalsá því það er komið mikið af laxi í ána og áin í flóðum núna. Spennandi dagar framundan. Hendi inn fréttum jafnóðum.

Skildu eftir svar