Jæja þá er ég loksins kominn í bæinn og loksins kominn með tölvuna mína í hendurnar aftur (það er nú saga að segja frá sem kemur seinna). Þar sem Breiðdalsáin var óveiðanleg ákvað ég að fara heim degi fyrr en áætlað var og sleppa því bara að veiða sjálfur þarna. ÚFFFFF svo taka þeir 22 punda lax og 15 punda urriða þegar ég er farinn (það er önnur saga sem líka kemur seinna).
Pabbi átti dag í Brúará og Hagaós á föstudag sem hann ætlaði ekki að nýta sér og við vorum öll fjölskyldan að fara þessa leið hvort eð var svo að ég ákvað að skella mér og taka strákinn hennar Guðrúnar með mér. Strákurinn fékk tvo fallega urriða á spúninn og sleppti öðrum þeirra. Hann vildi ólmur sleppa þeim báðum en þar sem seinni fiskurinn hafði tekið spúninn með svoddan hrikalegum látum var það því miður ekki hægt. Fyrir utan þessa tvo fiska varð ég ekki var við neitt líf þarna á svæðinu en ég verð þó að viðurkenna það að ég er orðinn nokkuð þreyttur á veiðiskap eftir síðustu tvær vikur. Ég er kominn með far á vísifingur hægri handar eftir þetta allt saman. aaaaa ég tek þetta tilbaka ég verð aldrei þreyttur á veiðiskap.
Hittum við svo foreldra mína sem komu með Guðrúnu úr bænum og fórum við öll saman upp að Hvítárvatni, nánar tiltekið í Baldurshaga þar sem fyrirhugað var að stunda landgræðslu. Við (ég, Guðrún og Zakarías) tjölduðum og sváfum þar eina nótt en lögðum svo snemma í hann upp á Hveravelli þar sem Gummi félagi minn er landvörður. Ekkert okkar hafði áður komið á Hveravelli svo að þetta var ákaflega ánægjuleg reynsla fyrir okkur öll og ég tala nú ekki um veðurblíðuna sem gerði okkur lífið enn skemmtilegra.
Frá Hveravöllum héldum við aftur í Baldurshaga og gæddum okkur á nýgrilluðum pylsum með öllu áður en við lögðum í hann aftur niður á láglendið. Gullfoss var heimsóttur, svo Geysir og að lokum kerið áður komið var í náttstað í Grímsnesi. Þar vorum við í nótt ásamt foreldrum mínum og átum væna flís af feitum sauð sem einnig hafði fengið að finna fyrir glóandi grillteinum. Í morgun þegar við vöknuðum fórum við í bátsferð á Álftavatni og köstuðum spún fyrir silung og síðar flugum. Höfðum uppúr krafsinu þrjú urriðaseiði sem öll fengu annað tækifæri til að gleðja komandi kynslóðir áhugasamra veiðimanna. Deginum og helginni var svo lokað með bíóferð á myndina Kung fu panda og ég get hiklaust mælt með henni, strákurinn allavega sparkar núna í allar áttir og er hinn glaðasti.
Talaði við Þröst Elliðason í gær og hann sagði mér af 22 punda laxi sem hafði fengist í Breiðdalsánni og öðrum mjög stórum urriða. Ég bað hann að senda mér myndir frá opnun Breiðdalsár og þessum urriða þar sem engar myndir náðust af laxinum. Hann sendi mér svo tölvupóst í kvöld með myndunum og ferskum fréttum. Náðist annar lax um meter á lengd í dag á Skammadalsbreiðu og það er ljóst að Breiðdalsáin byrjar tímabilið með hvelli í ár. Hendi myndunum sem Þröstur sendi mér inn í “Veiðimyndir“. Kíkið líka á “Ferðamyndir” þar eru nokkrar flottar myndir.
Flokkað undir: Pælingar, Stjáni Ben, Veiði | Tagged: 22 punda lax, Breiðdalsá, Grímsnes, Gullfoss, Hvítárvatn, Hveravellir, veiðimyndir