Ég er á fullu þessa dagana að setja upp nýja síðu fyrir bloggið og allt draslið mitt á www.stjaniben.com. Ég er svona að undirbúa flutning en það tekur sinn tíma að setja inn allar myndirnar og allt draslið héðan. Ég reikna þó ekki með að síðan verði komin almennilega í gagnið fyrren seint í haust þar sem ég hef víst nóg annað að gera þessa dagana. Ég hef ekkert farið að veiða núna síðan ég fór í Brúará föstudaginn 4. júlí en ég er að fara í burtu í Minnivallalæk með útlendinga og verð alla vikuna.
Mér skilst að það sé búið að veiðast mjög vel í Minnivallalæk undanfarið og ég set auðvitað inn aflatölur og myndir þegar ég kem aftur heim. Oft vill silungsveiðin gleymast þegar laxveiðin fer af stað og mér þykir það miður þar sem ég er sjálfur mun meiri silungsveiðimaður en laxveiðimaður. Kannski er líka bara svona auðvelt að gleyma sér þegar laxveiðin fer svona vel af stað.
En aftur að nýju síðunni… Hugmyndin hjá mér með þessa síðu hefur alltaf verið sú að birta efni sem mér sjálfum hefur fundist vanta fyrir veiðimenn og planið var alltaf að gera það hérna en þau plön hafa því miður farið fyrir lítið enn sem komið er. Ég byrjaði þokkalega og birti hérna veiðistaðalýsingar fyrir Minnivallalæk sem ég veit að margir hafa prentað út en síðan þá hefur lítill tími gefist fyrir “rannsóknarvinnuna” sem liggur að baki því efni sem mig langar mest til að birta. En það lítur nú allt út fyrir að þetta breytist og nýja síðan er einmitt liður í því. Þar get ég selt auglýsingar og þannig betur réttlætt tímann sem fer í þetta allt saman þó svo að ég muni halda auglýsingum í algjöru lágmarki. Helst vildi ég styðja við og auglýsa vörur sem ég veit að hinn almenni veiðimaður mun verða ánægður með og geta notað.
Haustið verður líka spennandi tími þar sem ég er að fara af stað með rannsóknarvinnu fyrir BA verkefnið mitt og ég reikna með að birta valda kafla á annari hvorri síðunni þegar þar að kemur. Ég er líka með fleiri skemmtileg verkefni á döfinni sem ég mun fara að upplýsa á næstu mánuðum. Þangað til, fylgist vel með bæði hér og á nýju síðunni minni og fylgist með uppbyggingunni sem mun eiga sér stað þar.
Flokkað undir: Markaðsmál, Pælingar, Stjáni Ben | Tagged: minnivallalækur, ný síða, www.stjaniben.com