Það besta við að vera “bara” bloggari er að ég get sett inn óstaðfestar fréttir annað en “alvöru” fjölmiðlar geta gert. Ég þarf ekkert að hafa myndir máli mínu til stuðnings né þarf ég að margstaðfesta fréttir frá áreiðanlegum heimildarmönnum heldur get ég bara hent fréttunum hingað inn og þið svo ákveðið hvort þið ákveðið að trúa þeim eða ekki. Nú langar mig að koma með óstaðfestar fréttir eða hreinan orðróm. Þannig er mál með vexti að þetta eru bara hlutir sem ég hef heyrt en ég er ekki með myndir eða nánari smáatriði máli mínu til stuðnings.
Gleðifréttir berast frá bæði Laxá í Nesjum og af Jöklusvæðinu þar sem fyrstu laxarnir eru komnir á land af báðum svæðum. Þannig fékkst 15 punda lax í Ármótahyl í Laxá í Nesjum í síðustu eða þarsíðustu viku og lax, sem ég ekki veit hversu stór er, í Laxá í Jökulsárhlíð (sem er að verða ein af mínum uppáhalds). Sannarlega góðar fréttir en það sem meira er, er að veiðimaður sá laxa í Jöklu sjálfri sem ég held að hafi enn ekki gefið lax, þ.e.a.s. sjálf Jökulsáin. Hliðarárnar hafa allar gefið lax, allavega þær sem staðsettar eru neðan þjóðvegsbrúar en ég held að það hafi enn ekki fengist lax á stöng í Jöklu sjálfri né í hliðaránum ofan brúar.
Mín kenning er sú að fyrst að laxinn er mættur lengst uppí Laxá í Jökulsárhlíð þá er hann líka mættur í Fögruhlíðará, Kaldá og Fossá og ef hann er mættur þangað þá er hann sannarlega mættur í Jöklu. Hrikalega væri ég til í að vera að gæda þarna núna. En hvað um það ég er á leiðinni í Minnivallalæk og verð þar alla vikuna. Ég var búinn að eyða löngum tíma í að setja upp myndaalbúm á nýju síðuna mína en svo bilaði forritið og ég varð að byrja upp á nýtt. Þess vegna er ég ennþá vakandi um miðja nótt.
Jæja, óstaðfestar fréttir herma að laxinn sé mættur á Jöklusvæðið og í Laxá í Nesjum. Ef þú lesandi góður hefur fréttir að færa mér af öðrum ám eða veiðisvæðum þá er um að gera að senda mér póst á stjaniben@stjaniben.com
Flokkað undir: Pælingar, Veiði, fluguveiði | Tagged: Jökla, laxá