Eins og flestir kannski vita þá er ég starfsmaður Veiðiþjónustunnar Strengja og hafa skrif mín hér á stundum litast af þeirri staðreynd. Auðvitað vildi ég halda skrifum mínum hérna óhlutdrægum en það verður þó að teljast eðlilegt að ég skrifi mest um veiðisvæði Strengja þar sem ég stunda þau svæði mest sjálfur sem og að ég hef aðgang að mun meiri upplýsingum um þau svæði. Reyndar hef ég áður sagt frá því að frændi minn er leiðsögumaður í Haffjarðará og ég hef reglulega ónáðað hann í hvíldinni að spyrja frétta. Þar gengur ljómandi vel og um daginn var metdagur í ánni eða 47 laxar yfir daginn sem verður að teljast nokkuð gott á sex stangir.
Með þessu hef ég vonandi dregið aðeins úr hlutdrægninni og get þá einbeitt mér að Breiðdalsá sem er klárlega flaggskip Veiðiþjónustunnar Strengja. Þegar ég var að “sörfa” netið um daginn rakst ég á áhugaverða síðu sem hafði að geyma aflatölur allra helstu laxveiðiáa landsins eftir vikum fyrir árið 2006. Nú eins og margir vita þá var metveiði í Breiðdalsá árið 2006 eða 937 laxar og því áhugavert að bera aflatölur ársins í ár, enn sem komið er, við aflatölur sömu vikna árið 2006, metársins.
Breiðdalsá opnar fyrir laxveiði þann 1. júlí ár hvert en teknar voru fyrstu tölur þann 5. júlí árið 2006. Þá höfðu veiðst 10 laxar í ánni en samkvæmt veiðibók Breiðdalsár sem má finna á netinu höfðu í ár veiðst 12 laxar, aukning uppá 20%. Næst voru tölur kannaðar viku seinna eða þann 12. júlí og höfðu þá veiðst 20 laxar árið 2006 en þann 12. júlí í ár höfðu veiðst 48 laxar, aukning uppá 140%. Viku seinna, þann 19. júlí 2006 höfðu veiðst 70 laxar en í ár, þann 19. júlí höfðu veiðst 105 laxar, aukning uppá 50%.
Hafa ber í huga að inní þessum tölum er ekki dagurinn í gær, 19. júlí en þá veiddust 17 laxar. Talan var semsagt komin í 122 laxa í gærkvöldi (19.júlí) sem er 14 löxum meira heldur en 26. júlí árið 2006, sem var, eins og margoft hefur komið fram metár í ánni. Meðaltalið enn sem komið er eru 6,4 laxar á dag á meðan meðaltalið árið 2006 var 3,6 laxar á dag. Árið 2006 var meðaltalið 10,4 laxar á dag yfir tímabilið og við erum nú þegar að horfa á 50% aukningu að meðaltali svo að ef maður leikur sér að því að fabúlera með þessar tölur þá gætum við verið að horfa á heildarveiði í ár um eða yfir 1400 laxa.
Auðvitað verður að taka öllum svona pælingum með tölur með varkárni þar sem við vitum ekkert hvað kemur til með að gerast í sumar. Verður viðvarandi vatnsleysi að gera mönnum lífið leitt eða verður eitthvað annað sem kemur til? Miðað við snjóstöðuna í fjöllunum þá ætti vatnsleysi ekki að vera mikið vandamál í sumar og því vona ég bara að veiðin fari framúr björtustu vonum. Þess ber þó að geta að enn eru lausar stangir í byrjun ágúst en þá viku veiddust einmitt 110 laxar í ánni árið 2006. Það eru líka lausar stangir í september sem er mjög góður tími í ánni og ef maður skoðar töfluna yfir árið 2006 má sjá að vikuna 30. ágúst til 6. september veiddust í ánni 173 laxar!!! Hugsið ykkur ef fer sem horfir með þessa aukningu sem ég er búinn að vera að velta fyrir mér hérna að ofan hversu mikið gæti veiðst þessa daga. Lausar stangir má sjá hér http://www.strengir.is/iceland/laus_veidileyfi.htm.
Ég verð þó að taka það fram að ég er ekki að skrifa þennan póst sem starfsmaður Strengja heldur bara sem ómerkilegur veiðibloggari sem situr með kaffibollann sinn á sunnudegi að fara yfir veiðifréttir. Mér finnst það bara skylda mín sem veiðimanns að benda öðrum veiðimönnum á það hvað er í boði hverju sinni og í mínum huga eru þessir dagar sem lausir eru hrikalega spennandi og ég vildi óska þess að ég ætti lausan tíma til að fara og veiða þarna. Ég verð líka að taka það fram að ég styðst bara við tölur sem ég fann á netinu, annars vegar á http://www.rifflehitch.com/default.asp?page=au&id=55 og hins vegar á http://strengir.is/veidibok/Report.aspx.
Ef menn hafa áhuga á fréttum úr öðrum ám er um að gera að senda mér aflatölur og fréttir á stjaniben@stjaniben.com, sem minnir mig á það… ég minni aftur á nýju síðuna mína sem fer að verða boðleg, www.stjaniben.com
Flokkað undir: Pælingar, Stjáni Ben, Veiði, Veiðistaðalýsingar, flyfishing | Tagged: Breiðdalsá, Haffjarðará, laxveiðin 2006, laxveiðin 2008, veiðitölur