Jæja.. eitt og annað

Var að fá sendan geisladisk í pósti fullum af myndum en fékk því miður ekki leyfi til að setja þær á síðuna alveg strax en fékk þó leyfi til að nota nokkrar þeirra. Þannig er mál með vexti að það var Hollenskur blaðamaður við veiðar á Íslandi ekki alls fyrir löngu og hann var meðal annars við veiðar í Breiðdalsá. Það var einmitt þessi sami maður sem tók myndirnar af Óla gæd í Breiðdalsá með stóra urriðann sem hann fékk í Klapparhyl. Fyrir þá sem ekki hafa hugmynd um hvað ég er að tala um þá er fréttin um málið hér og myndin sem ég var búinn að skella hingað inn hér (bara klikka á bláu stafina).

En allavega.. þessi blaðamaður sendi mér myndir og þar má meðal annars finna fleiri myndir af þessum stóra urriða og ég fékk leyfi til að nota þær. Umræddur blaðamaður er virtur í sínu fagi og hefur skrifað greinar í fjölda veiði- og ferðatímarita ásamt því að hafa gefið út eigin bækur um veiði. Ég skrifa fljótlega grein um þennan merka mann og held áfram að pressa á hann með fleiri myndir.

En að öðru… ég sendi Valla leigutaka Húseyjarkvíslar tölvupóst í dag og fékk strax svör frá honum með myndum. Hann sagði mér að það veiddist vel í Kvíslinni og veiðin þar núna væri sú besta síðan hann tók við. Hollin sem eru búin að vera núna uppá síðkastið hafa veitt svakalega vel og vatnsstaðan er eins og hún gerist best. Frábært að heyra og menn virðast almennt vera sammála um að smálaxinn er líka fyrr á ferðinni en oft áður.

Þetta eru svo sem engar nýjar fréttir að það skuli veiðast vel en sjaldan er góð ýsa of oft freðin… eða eitthvað í þá áttina. Ég bíð spenntur eftir fleiri myndum og um leið og þær koma í hendurnar á mér fara þær hingað inn fyrir alla að njóta. Ég ítreka það við ykkur lesendur góðir að ef þið hafið eitthvað bitastætt að koma á framfæri ekki hika við að senda mér tölvupóst á stjaniben@stjaniben.com

Skildu eftir svar