Posted on ágúst 31, 2008 by stjaniben
Jæja.. þessi mynd er tekin af bílastæðinu ofan þess litla árstubb sem er á milli laxastiga í Laxá á Refasveit. Ég tók þessa mynd í gegnum veiðigleraugun og nú er spurningin hversu margir sjá stóra laxinn á myndinni?
Flokkað undir: Pælingar, Veiði, fluguveiði | Tagged: stórlax | 4 ummæli »
Posted on ágúst 31, 2008 by stjaniben
Jæja þá er næst síðasta laxveiðitúr ársins lokið en sá stóð yfir í tvo daga á bökkum Laxár á Refasveit. Laxá rennur til sjávar í Húnaflóa ásamt mörgum af bestu laxveiðiám landsins. Laxáin er þriggja stanga á í dag en hefur alltaf verið einungis tveggja stanga. Við pabbi vorum þarna bara tveir og eins og [...]
Flokkað undir: Veiði, Veiðistaðalýsingar, fluguveiði, flyfishing | Tagged: bleikja, Lax, laxá á refasveit, laxveiði, veiðimyndir 2008 | 5 ummæli »
Posted on ágúst 27, 2008 by stjaniben
Ég er að fara í Laxá á Refasveit á morgun og mig vantar aðstoð veiðimanna áður en ég fer. Það lesa þetta svo svakalega margir og mér datt í hug að nýta tækifærið og fá góð ráð frá mönnum. Ég hef ekki mikla reynslu af laxveiði og ég þarf að vita hvað menn taka til [...]
Flokkað undir: Pælingar, Veiði, fluguveiði | Tagged: Breiðdalsá, laxveiði, reynsla | 8 ummæli »
Posted on ágúst 26, 2008 by stjaniben
Nú styttist í annan endann á þessari veiðivertíð fyrir mig því í næstu viku byrjar skólinn á fullum krafti. Ég er að fara á síðasta árið mitt í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum og hlakka mikið til. Veturinn í vetur mun snúast að mestu leyti um BA verkefnið mitt og Manchester United þó svo efnið [...]
Flokkað undir: Pælingar, Veiði, fluguveiði | Tagged: fluguveiði, Haffjarðará, háskólinn á hólum, hólaskóli, kastkennsla, laxá á refasveit | Leave a Comment »
Posted on ágúst 25, 2008 by stjaniben
Ég var svo svakalega þreyttur í gær þegar ég skrifaði síðasta póst að ég hreinlega nennti því ekki. Var að renna yfir póstinn og sé að það vantar helling í hann og ég ætla að bæta úr því núna með smá statistík úr Laxá í Nesjum.
Þegar við yfirgáfum svæðið í gær voru komnir 70 laxar [...]
Flokkað undir: Pælingar, Veiði, Veiðistaðalýsingar, fluguveiði, flyfishing | Tagged: Lax, Laxá í Nesjum, laxveiði, veiðistaðir | Leave a Comment »
Posted on ágúst 24, 2008 by stjaniben
þá erum við hjónin komin heim eftir hreint æðislegan túr í Laxá í Nesjum. Mig langar að taka það fram áður en ég skrifa umfjöllun um túrinn að ég er starfsmaður Veiðiþjónustunnar Strengja sem leigja ána og annast sölu veiðileyfa þar. Vegna þessa er erfitt að vera óháður umfjöllunaraðili en ég tek það fram að [...]
Flokkað undir: Veiði, Veiðistaðalýsingar, fluguveiði, flyfishing | Tagged: flugur, laxar, Laxá í Nesjum, laxveiði, myndir, snælda, túpur | Leave a Comment »
Posted on ágúst 20, 2008 by stjaniben
Jæja stundum leitar maður langt yfir skammt. Ég komst að því að ég er búinn að vera í þráðlausu netsambandi allan tímann svo að ég þurfti ekki að vera að standa í þessu veseni. Hvað um það. Ég var að setja inn nýja möppu með myndum héðan að austan undir heitinu Þveit – Hoffellsá. Ágúst [...]
Flokkað undir: Veiði, fluguveiði, flyfishing | Tagged: Þveit, Hoffellsá, Laxá í Nesjum. laxveiði, veiðimyndir | Leave a Comment »
Posted on ágúst 20, 2008 by stjaniben
Komum til Hornafjarðar á laugardag og höfum verið að skoða okkur um og hafa það náðugt. Við byrjum að veiða í Laxá í Nesjum á morgun en höfum verið að veiða bæði í Þveit og Hoffellsá svona til að stytta okkur stundir. Við erum búin að fá einn urriða í Hoffellsá um tvö pund og [...]
Flokkað undir: Veiði, fluguveiði, flyfishing | Tagged: Þveit, Höfn, Hoffellsá, Hornafjörður, rigning, urriði | Leave a Comment »
Posted on ágúst 18, 2008 by stjaniben
Ég er staddur á Hornafirði ásamt Guðrúnu konu minni en við höfðum hugsað okkur að veiða hérna í nokkra daga. Gallinn er hins vegar sá að hér er allt skraufaþurrt. Nánast allar sprænur á þessu svæði eru þornaðar upp og það sem áður voru þokkalegar ár eru bara pollar. Það fór þó loksins að rigna [...]
Flokkað undir: Pælingar, Veiði | Tagged: Laxá í Nesjum, rigning, veður, veiðiveður | 1 ummæli »
Posted on ágúst 15, 2008 by stjaniben
Stundum þarf ég að opinbera það hversu lítið ég veit og ég þarf að gera það einmitt núna. Guðmundur Guðjónsson ritstjóri Vötnogveiði.is gerir athugasemd við mynd af fiskinum sem konan mín fékk í Þverá í Fljótshlíð um verslunarmannahelgina og af þeim sökum hef ég ákveðið að skrifa þennan póst og greina frá vangaveltum mínum um þessi [...]
Flokkað undir: Pælingar, Veiði | Tagged: birtingur vs. urriði, sjóbirtingur, staðbundinn urriði | 2 ummæli »