Þegar ég kom heim úr síðasta veiðitúr velti ég því fyrir mér hversu þungir laxarnir hefðu verið sem ég hafði fengið. Ég hafði sleppt þeim báðum en aðeins lengdarmælt þá. Ég mundi það svona c.a. hversu þungir þeir ættu að vera en vildi vera með þetta nákvæmt svo ég fór að leita að margumtalaðri Veiða/sleppa töflu veiðimálastofnunar. Ég “Gúgglaði” hin ýmsu leitarorð en aldrei kom neitt í ljós svo að ég fór á heimasíðu VMST og gramsaði þar. Ótrúlegt en satt fann ég ekki þessa töflu þrátt fyrir mikla leit svo að ég sendi þeim tölvupóst þar sem ég bað um leyfi á að birta töfluna hér. Ég hef enn ekki fengið svar en ég fann töfluna eftir enn meiri leit og skellti inn link á hana hér til hliðar. Vonandi geta þeir sem eru að leita að þessu bara fundið þetta auðveldlega hjá mér núna.
Ég er að leggja af stað í leiðangur og kemst vonandi í netsamband fyrr en síðar. Ég fer að grafa upp fréttir og myndir að deila með ykkur.
Flokkað undir: Pælingar, Veiði, fluguveiði | Tagged: veiða - sleppa kvarði, veiða / sleppa, veiða/sleppa tafla, Veiðimálastofnun, VMST
Ætli það sé til svona tafla fyrir bleikju og urriða? Eða ætti þessi tafla líka að duga fyrir silunginn?
Sælir,
Flott að fá linkinn svona þar sem ég fann hann hvergi þegar ég leitaði að honum fyrr í sumar. Svona til gamans að geta þér þessi skali samt oft langt frá því að vera réttur eins og flessir vita þar sem þessir laxar eru víst mjög mis feitir eins og við mannfólkið og aðrar lifandi verur.
Annars mjög flott blog hjá þér og mjög skemmtilegur lestur.
Veiðikveðja,
Sigurberg