Uppfærð veiðistaðalýsing fyrir Minnivallalæk – Fyrsti hluti

Þar sem ég hef verið í burtu upp á síðkastið hef ég ekki verið duglegur að uppfæra síðuna og biðst ég afsökunar á því. Ég var í fríi en þó ekki að veiða og hef í raun engar ferskar veiðifréttir aðrar en þær sem allir veiðimiðlar landsins eru búnir að birta. Það skiptir þó ekki öllu máli því nú styttist í túrana mína og þar á meðal einn könnunar túr sem ég hlakka mikið til að fara í og segja frá. Þangað til ætla ég að standa við gefin loforð og uppfæra veiðistaðalýsingar fyrir Minnivallalæk og hér er fyrsti hlutinn. Mig langar að taka það fram með Minnivallalæk að það skiptir höfuðmáli að fara varlega og vanmeta það alls ekki að koma aftan að fiskunum og passa skuggann af sér. Ég hef alltof oft séð menn standa yfir hyljunum og kasta og kasta en án árangurs. Þar eru menn bara að eyða tíma sínum í fiska sem munu ekki taka því styggð er komin á þá. Hefst þá yfirferðin á tveimur efstu stöðunum í læknum.

 

Húsabreiða.

 

Húsabreiða er samnefnari yfir mjög stóran veiðistað og má í raun segja að veiðisvæðið byrji neðst í Klofalæk við bílastæðið fyrir framan veiðihúsið. Þar kemur smá grastangi útí lækinn og þar er djúpt. Þarna fer stórt rör yfir lækinn og oft má sjá fiska undir rörinu og eins fyrir framan eða aftan. Þarna má alls ekki fara niður á grastangann heldur verður að koma aftan að eða fara langt ofan við. Þarna er þó mikil drulla í botninum og það má ekkert vaða í rauninni svo að ég mæli með að menn komi aftan að og annað hvort kasti púpum andstreymis eða hreinlega straumflugu og strippi hratt yfir rörið. Setji menn í fisk þarna þarf að toga hann frá rörinu því annars geta skapast vandamál.

 

Þarna er svo grunnt alveg niður að lækjarmótum þar sem dýpkar við bakkana báðum megin. Á horninu veiðihús megin myndast djúpur pottur og þar má oft finna fisk. Á horninu við bakkan austan megin má mjög oft sjá fisk í uppítökum og mig grunar að hann haldi sig fast við bakkann og skjótist svo í var undir bakkanum ef styggð kemur að honum. Þegar þarna er komið við sögu má segja að fiskur liggi við bakkann austan megin niður eftir allri breiðunni og er sérstakur heitur reitur við blá skiltið sem er á bakkanum austan megin og við girðingarendann á vesturbakkanum.

 

Yfirleitt veiði ég Húsabreiðu andstreymis með púpum ef engar uppítökur eru en þurrflugum ef þannig aðstæður eru. Þá byrja ég neðst á vesturbakkanum og vinn mig áfram upp ána. Læt þá flugurnar lenda nálægt bakkanum austan meginn. Byrja í miðjunni og vinn mig svo að bakkanum í c.a. þremur köstum. Færi mig svo aðeins ofar og byrja aftur. Svona fer ég alla leið upp að lækjarmótum og kasta þá í báðar áttir, bæði á hornið við veiðihúsið og svo meðfram bakkanum austan meginn en enda svo á rörinu. Þá má svo skipta yfir í straumflugu og vinna sig niður eða hreinlega skipta um flugur og byrja aftur neðst. Ég er á þeirri skoðun að tíminn sem tekur að vinna sig upp sé nægur til að hvíla neðsta hlutann. Þarna er mikið af mýflugu í drullubotninum í Klofalæk og Skarðslæk og þess vegna eru mýflugur alltaf mitt fyrsta val þarna nema greinilegt sé að eitthvað annað klak sé í gangi.

 

Stöðvarhylur

 

Sömu sögu er að segja um Stöðvarhyl en það er líka mjög stór veiðistaður og fiskur liggur um allt. Þess ber að geta að oft má sjá fisk á breiðunni á milli Stöðvarhyls og Húsabreiðu og oft hef ég reynt við þá fiska en án árangurs. Fyrir ofan aðal hylinn eru tveir hólmar útí ánni og við eystri hólmann er straumrenna sitt hvoru meginn við hann sem myndar djúpan pott. Fiskur liggur oft í þessum straumrennum. Straumurinn sem rennur austan við hólmann rennur í annan djúpan pott sem er í beygjunni alveg við bakkann og þar liggur alltaf fiskur. Næst taka við flúðir og þar er straumur fast við báða bakkana en rétt er að taka það fram að ekki má veiða frá vesturbakkanum í Stöðvarhyl því þar er fiskeldisstöð á bakkanum. Alveg við bakkann austan megin rétt ofan við skiltið sem merkir staðinn er undirgrafinn bakki og þar má mjög oft finna fisk sem rétt er að reyna við svona í lokin. Þarna er lítill hólmi útí læknum og aðeins neðar er hvítur tankur við vesturbakkann. Straumur er eins og áður segir við báða bakkana en þar sem straumurinn endar við austur bakkann er smá dýpi og þar er alltaf fiskur en það verður að koma aftan að þeim fisk því maður stendur ofan í honum ef maður kemur að þar sem skiltið er á bakkanum.

 

Í straumnum við vesturbakkann er fiskur og þá sérstaklega þar sem straumurinn endar við hvíta tankinn. Þarna er mjög djúpur pottur sem er fullur af fiski og ég ítreka það.. fullur af fiski og það er óþarfi að sannreyna það. Menn verða bara að treysta mér. Svo kemur grashólmi útí á vesturbakkanum rétt neðan við tankinn og þar er greinilega strengur. Við hólmann í endann á strengnum er djúpur pottur sem líka er fullur af fiski. Þarna þarf að sökkva púpunum. Svo er það breiðan þarna fyrir neðan en þar eru djúpar rennur um alla breiðu sem fiskur liggur í. Ég hef það fyrir reglu að setjast alltaf niður fyrir neðan breiðuna og fylgjast með þarna því fiskarnir þarna koma alltaf upp um sig eftir smá stund. Ég byrja alltaf á því að púpa mig upp breiðuna á móti straum og byrja þá að kasta við bakkann austan meginn og vinn mig svo kerfisbundið útí miðju og kannski rúmlega það þarna neðst. Svo þegar ég er kominn að þeim stað þar sem fer að dýpka við vesturbakkann þá fer ég miða köstunum kerfisbundið á milli bakka. Ég er alltaf mjög skeptískur á það hversu vel menn veiða þennan stað þegar þeir segjast vera búnir eftir 30 mín. Það tekur mun lengri tíma að veiða þennan stað vel og ég hef oft fengið fiska þarna neðst og haldið svo áfram og tekið fiska ofar.

 

Þegar ég er kominn að tanganum sem skiltið er á vandast málið aðeins með púpurnar. Þarna er mikill straumur, djúpt, tveir strengir og öfugstreymi á milli þeirra sem gerir manni lífið leitt ef maður er að reyna að ná “drag free drift”. Þarna skipti ég alltaf yfir í straumflugu og veiði hylinn andstreymis með straumflugu. Þá kasta ég straumflugunni efst í strenginn og leyfi henni að sökkva vel og koma niður í hylinn með straumnum. Held línunni úr straumnum við bakkann mín meginn og leyfi öfugstreyminu að fiskta aðeins í línunni. Þegar flugan hefur fengið að sökkva strippa ég hana hratt inn og fæ mjög oft fisk þannig. Þarna kasta ég líka straumflugunni niður á breiðuna sem ég var að klára að púpa.

 

Svo skipti ég aftur yfir í púpur og vinn mig upp ána fram hjá hólmunum tveimur sem þarna eru. Minni á að hafa augun opin og fylgjast með uppítökum. Ef ég sé uppítökur þá bíð ég eftir að sjá að minnsta kosti þrjár í röð með stuttu millibili og skipti þá yfir í þurrflugu og reyni við fiskinn. Eða set þurrflugu á dropper og hnýti smá taumstubb í buginn á þurrflugunni og set litla púpu á endann á þeim stubb. Þannig virkar þurrflugan sem tökuvari og sem “beita”. Oft virkar þessi aðferð líka vel ef langt er á milli uppítaka til að æsa fiskinn til að taka. Kasta þá flugunum á sama staðinn svona tíu sinnum í röð.. virkar mjög oft.

Skildu eftir svar