Ég er að fara í Laxá á Refasveit núna fljótlega og hlakka mikið til. Ég sendi einum leigutakanum tölvupóst fyrir stuttu og spurði um aflabrögð og fleira. Hann sendi mér nokkrar myndir með og birti ég þær hérna. Ég fékk líka sent huggulegt skjal sem hefur að geyma veiðistaðalýsingu fyrir Laxá á Refasveit og ef einhver vill fá þetta skjal sent þá er um að gera að senda mér tölvupóst á stjaniben@stjaniben.com
Flokkað undir: Veiði, Veiðistaðalýsingar | Tagged: laxá á refasveit, laxveiði, myndir




