Stundum þarf ég að opinbera það hversu lítið ég veit og ég þarf að gera það einmitt núna. Guðmundur Guðjónsson ritstjóri Vötnogveiði.is gerir athugasemd við mynd af fiskinum sem konan mín fékk í Þverá í Fljótshlíð um verslunarmannahelgina og af þeim sökum hef ég ákveðið að skrifa þennan póst og greina frá vangaveltum mínum um þessi mál.
Þegar Guðrún fékk fiskinn var ég handviss um að þetta væri lax því í baráttunni sá ég hvernig það flassaði ítrekað silfri eins og þegar maður er með lax á. Svo þegar fiskurinn kom að landi sá ég að þetta var sjóbirtingur (eða öllu heldur hélt ég það). Fiskurinn var mjög bjartur og silfraður en var farinn að fá svona grábrúna slikju á kviðinn þ.e. kviðurinn var ekki alveg hvítur eins og á nýjum lax og birting. Einhvers staðar heyrði ég að ef það væru rauðir dílar á fisknum þá væri um staðbundinn fisk að ræða þar sem birtingur væri ekki með þessa rauðu díla. Allavega…. Við þurftum að drepa fiskinn þar sem hann var mikið særður eftir krókinn en við mynduðum hann í bak og fyrir og skelltum myndunum hér inn. Þegar ég kom heim og skoðaði myndirnar í tölvunni þá fannst mér útlit fisksins allt öðruvísi heldur en hann leit út fyrir “hinu nakta auga” (the naked eye) þarna á bakkanum. Á myndunum lítur fiskurinn út fyrir að vera staðbundinn og ég tók það meira að segja fram í póstinum.
Nú kalla ég eftir nákvæmum leiðbeiningum um það hvernig ég á að greina sjóbirtinga frá staðbundum fiskum því ég hef lent í þessu áður. Þá fékk ég silfraða urriða í Soginu í maí fyrir nokkrum árum síðan og fékk þau svör að þetta væri staðbundinn fiskur sem væri bara svona silfraður á vorin. Óli gæd í Breiðdalnum fékk 15 punda fisk í Breiðdalsá í júlí eins og frægt er og menn sem voru á staðnum staðhæfa við mig að um sjóbirting væri að ræða en á myndum lítur fiskurinn út fyrir að vera staðbundinn.
Mér er nokk sama hvort Guðrún fékk staðbundinn fisk eða sjóbirting því fiskurinn er fallegur engu að síður með smá hnakkaspik og alles. Ég fagna þó þessari umræðu því ég verð að viðurkenna að þarna er ég blankó hvað þessi mál varða og verð hreint að viðurkenna að ég er kannski ekki eins viss í minni sök um það hvernig á að þekkja greinilegan mun á sjóbirting og staðbundum urriða.
Ég er að skoða myndirnar betur núna og þetta virðist vera staðbundinn fiskur en ég sver það að fiskurinn leit allt öðruvísi út fyrir mér á bakkanum. Ég þakka Guðmundi fyrir þessa athugasemd sem á fyllilega rétt á sér en mér finnst eins og ég hafi heyrt af þessu áður að liturinn brenglist á myndum hvað svo sem sé til í því.
Flokkað undir: Pælingar, Veiði | Tagged: birtingur vs. urriði, sjóbirtingur, staðbundinn urriði
Góðan og blessaðan daginn, eru Man.utd menn ekki bjartir fyrir nýrri leiktíð?
Gott hjá þér að nefna þetta með urriða og birting,
þegar ég horfði á myndina af fisknum þá vorum við bræður sammála um að þetta væri urriði (tek samt fram að um mjög flottan fisk var að ræða hjá konuni þinni þannig hvort heldur sem er flottur fiskur)
Urriði Vs Sjóbirtingur : við erum að tala um náskylda fiskstofna þannig það er ekki nema von að það sé stundum ómuglegt að allir séu sammála hvort sé um að ræða. Þetta er ekkert flókið þegar við erum að tala um nýgengna birtinga eða geldfiska,(silfraðir og flottir) en þegar við sjáum leginn sjóbirting þá virðist málið oft vandast.
Við viljum meina að legin sjóbirtingur verði allur dökkgrár einnig á uggum,ekki ljósbrúnn og með þennan afgerandi brúna lit á kvið og uggum.
Fiskurinn sem konan þín veiddi minnti mig ótrúlega á urriðan sem veiddist í Elliðaánum í vor og vildi veiðimaður og veiðivörður Elliðaána meina að þetta væri sjóbirtingur (ekki sammála)
Inni á síðunni okkar ( http://veidimenn.com/ ) eru margar myndir af legnum sjóbirtingum þar á meðal þessum stóra sem Hörður fékk í fyrra og þetta viljum við meina að það sé liturinn á legnum sjóbirting, og gott að sjá hvað hann er allur dökkgrár á uggum og kvið.
http://album.123.is/?aid=61657 ef þú skoðar þennan link þá sérðu mynd af tveim fiskum sem ég veiddi í fyrra annar klárlega sjóbirtingur allur stein-dökkur á kvið og uggum,
og svo það sem ég vil meina að sé urriði ljósir uggar smá svona brúnn keimur en samt smá blámi á honum og það er það sem ég held að rugli líka oft menn.
En afsakaðu langlokuna en þetta er alltaf skemmtileg umræða, tek fram að ég er ekki að alhæfa neitt um þetta (enda þoli ég ekki menn sem alhæfa of mikið) einungis mín skoðun.
Kveðja frá Mokveiðifélaginu
[...] um sjóbirtinga og staðbundna Skrifað þann október 7, 2008 af stjaniben Ég skrifaði póst hérna fyrr í sumar eftir að ég fékk tölvupóst frá Guðmundi Guðjónssyni ritstjóra [...]