Við biðjum um rigningu

Ég er staddur á Hornafirði ásamt Guðrúnu konu minni en við höfðum hugsað okkur að veiða hérna í nokkra daga. Gallinn er hins vegar sá að hér er allt skraufaþurrt. Nánast allar sprænur á þessu svæði eru þornaðar upp og það sem áður voru þokkalegar ár eru bara pollar. Það fór þó loksins að rigna hressilega í morgun en betur má ef duga skal því það hefur nú þegar stytt upp. Við eigum að byrja að veiða í Laxá í Nesjum á fimmtudag og því biðjum við um rigningu á hverju kvöldi. Ég þarf að fá fleiri í lið með mér og vona að lesendur séu til í að leggja okkur lið og biðja yfirvaldið um rigningu og meiri rigningu.

Set inn fréttir af veiði þegar við byrjum en planið er að veiða hin og þessi veiðisvæði hérna fyrir austan þangað til við byrjum í Laxánni.

Ein ummæli

  1. Ég er algerlega með þér í að biðja um rigningu, fer í Norðuránna í næstu viku, þannig það er eins gott að það hellidembi svakalega hehe.

    Tight Lines,

    svennih

Skildu eftir svar