Og rigningu fengum við

Komum til Hornafjarðar á laugardag og höfum verið að skoða okkur um og hafa það náðugt. Við byrjum að veiða í Laxá í Nesjum á morgun en höfum verið að veiða bæði í Þveit og Hoffellsá svona til að stytta okkur stundir. Við erum búin að fá einn urriða í Hoffellsá um tvö pund og sjá einn stærri.

En Þveitin, litla vatnið hérna í Nesjunum er heldur betur að leyna á sér en við erum búin að slíta uppúr því átta urriða frá hálfu og uppí fimm pund og missa marga. Þvílíkt líf sem er búið að vera í þessu vatni síðustu daga. Vorum við í tvo tíma á mánudag, klukkutíma í gær og tvo tíma í dag.

Við báðum um rigningu þar sem allt var gjörsamlega að skrælna upp hérna og það má með sanni segja að við fengum svar við bænum okkar. Í nótt vaknaði ég upp við þrumur og þvílíkt sem rigndi með þeim. Í morgun sáum við svo hversu mikið hafði bæst í árnar hérna og þess má meðal annars geta að lítil á hérna sem var ekki til staðar á sunnudag er í dag hin fínasta á orðin. Tókum myndir af fiskum, þurrki og svo bleytu sem eru í tölvunni minni og mun ég henda þeim hérna inn vonandi í dag ef ég kemst í þráðlaust netsamband.

Skildu eftir svar