Jæja stundum leitar maður langt yfir skammt. Ég komst að því að ég er búinn að vera í þráðlausu netsambandi allan tímann svo að ég þurfti ekki að vera að standa í þessu veseni. Hvað um það. Ég var að setja inn nýja möppu með myndum héðan að austan undir heitinu Þveit – Hoffellsá. Ágúst 2008.
Skelli hérna til gamans inn myndum af sömu ánni eða læknum fyrir og eftir rigningu sem sýna hversu mikilvæg rigningin er okkur veiðimönnum. Hér má fyrst sjá mynd af ánni á sunnudag.
Og svo rigndi… fyrst slatti á mánudag og svo rosalega í nótt með þrumum og svona skemmtilegu með. Þessi mynd hér að neðan er tekin af sömu brúnni af sömu ánni. Eins og sjá má skiptir rigningin öllu máli enda vatnsmagnið í Hoffellsá sem þessi á rennur í allt annað í dag en á sunnudag.
Nú biðjum við bara um aðeins meiri rignignu í nótt og fram eftir morgni á morgun því við hefjum veiðar í Laxá í Nesjum seinni partinn á morgun. Hendi inn fréttum og myndum af þeirri ferð sem fyrst. En af Laxá í Nesjum er það að frétta að veiðin er að nálgast 50 laxa þrátt fyrir algjört vatnsleysi. Ég vona að rigningin gefi veiðinni nýtt líf.
Flokkað undir: Veiði, fluguveiði, flyfishing | Tagged: Þveit, Hoffellsá, Laxá í Nesjum. laxveiði, veiðimyndir

