þá erum við hjónin komin heim eftir hreint æðislegan túr í Laxá í Nesjum. Mig langar að taka það fram áður en ég skrifa umfjöllun um túrinn að ég er starfsmaður Veiðiþjónustunnar Strengja sem leigja ána og annast sölu veiðileyfa þar. Vegna þessa er erfitt að vera óháður umfjöllunaraðili en ég tek það fram að hér er algjörlega um mína eigin skoðun að ræða og þeirra sem veiddu með mér í þessu holli.
Laxá í Nesjum er tveggja stanga á sem rennur um Nesjar í Hornafirði. Ég og Guðrún kærasta mín vorum með eina stöng en Valdi vinur minn og Ásgeir frændi minn með eina stöng. Við vorum þarna í þrjá daga, settum í 23 laxa en náðum aðeins að landa 11. Þar af settum við Guðrún í átta laxa en lönduðum fimm. Ég ætla að segja frá hverjum og einum en fara svo í hugleiðingar um ána þar á eftir. Þetta er ég að mestu að gera fyrir sjálfan mig að eiga í framtíðinni en það var einmitt grunnhugmyndin til að byrja með að vera með veiðidagbók sem væri aðgengileg fyrir alla. Vonandi geta þá þeir sem hafa áhuga á því að veiða í Laxánni eitthvað nýtt sér þetta.
Lax númer 1
Þennan fékk ég í lok annarar vaktarinnar í Ármótahyl. Þarna var áin gjörsamlega komin í grjót og ekki búið að rigna neitt af viti í langan tíma. Fiskur var í Gljúfurhyl, Borgarhyl, Fossinum og Ármótahyl en hann haggaðist ekki annars staðar en í Ármótahyl. Þar stökk fiskur mjög víða og gat gert mann geðveikan þarna því hann tók illa. Rétt fyrir hádegi fórum við Guðrún niður í Ármótahyl eftir að hafa veitt gljúfrið án árangurs og strax sjáum við lax stökkva. Við ætluðum að hætta klukkan 12 og fara og horfa á handboltaleikinn svo að ég setti Sun ray shadow undir. Eftir nokkur köst gefst ég upp og spóla inn línuna en sé þá að lax eltir. Skipti þá um flugu og set tveggja tommu Silver sheep á plasttúpu undir og kasta yfir strenginn. Þegar hægði á flugunni og hún nánast komin að bakkanum við fætur okkar kemur sá silfraði uppúr djúpinu og neglir hana. Sá reyndist vera 64 cm hængur aðeins lúsugur. Veðrið var fínt, þungbúið, hlýtt og nánast logn.
Lax númer 2
Þennan á Valdi félagi minn. Boggi Tona aðalgædinn í Laxá var búinn að segja okkur að vera niðrí Ármótahyl á fjörunni því þá væri eins og takan væri meiri og því ákváðum við að fara með báðar stangirnar þangað niður eftir. Þarna er mjög rúmt um báðar stangirnar því fiskur er þarna útum allt og svæðið er stórt. Í fyrsta kastinu sínu með rauðum Frances númer 12 í strauminn neglir fiskur fluguna. Eftir snarpa viðureign kom 59 cm hrygna á land og fékk að fara aftur í ána til að klára ætlunarverk sitt.
Lax númer 3 (náðist ekki á land)
Karl faðir minn kom í heimsókn á leið sinni áfram norður í Selá í Vopnafirði og þegar Valdi hafði landað sínum kastaði kallinn á sama stað með uppáhaldsflugunni sinni, hálftommu Green butt með keilu. í öðru kasti neglir smálax fluguna en eftir c.a 2 mínútur lak hann af.
Lax númer 4
Nú erum við komin á laugardagsmorgun, Ásgeir frændi mættur á svæðið og búið að rigna hressilega um nóttina. Við Guðrún áttum neðra svæðið og byrjuðum í Borgarhyl. Töluvert hafði hækkað í ánni og það var hlýtt úti. Við höfðum farið seint að sofa og vorum því líka seint á fótum. Byrjuðum á rauðum Frances númer 16 á tvíkrækju. Engin viðbrögð. Collie dog númer 14 og strippað hratt. Engin viðbrögð. Þá hugsaði ég með mér að guli liturinn í Silver sheep gæti kannski gert gæfumuninn í svona skoluðu vatni og renndi þá yfir boxið mitt. Kom auga á afbrigði af Garry sem ég hafði hnýtt á gulltvíkrækju númer 12. Set hana undir og byrja að kasta. Sat á klöpp þarna við hylinn og strippa í stuttum rikkjum yfir rennuna sem er þarna í klöppinni. Fékk næstum hjartaáfall þegar fiskur kemur uppúr og bombar fluguna án þess þó að festa sig. Nú var gaman. Kasta aftur á sama stað og það er sama sagan. Næstu 20 köst gerist þetta sama í öðru hverju kasti um allan staðinn. Skipti í örlítið stærri Cascade en fæ engin viðbrögð. Þá bendir Guðrún mér á að setja undir flugu sem ég hnýtti og hannaði sjálfur og skírði í höfuðið á litlu frænku minni, henni Sigurrós. Fyrsta kast og hann kemur í hana. Annað kast, sama sagan. Þriðja kast og hann kemur, hittir ekki en kemur aftur á eftir henni og neglir hana. Sá var trylltur. Þegar ég svo náði honum á land var flugan vel föst í efri skolti. Þar var á ferð 63 cm hængur sem fékk að fara aftur. Þarna var mikill úði og hægur vindur.
Lax númer 5 og 6 (náðust ekki á land)
Guðrún tekur við stönginni og reynir aftur við sama stað með sömu flugu en fékk engin viðbrögð. Þá skiptum við aftur yfir í Garry afbrigðið og allt fer af stað aftur. Var þetta þessi skæri litur sem hafði svona mikið að segja? Sagan endurtekur sig frá fyrsta fiskinum þar sem þeir skvampa bara í fluguna án þess að taka. Ég hef séð þetta áður í Húseyjarkvísl fyrr í ágúst og eflaust kannast margir við þetta. Kvarttommu þýsk snælda fór undir og í fyrsta kasti neglir stór fiskur túpuna, rýkur af stað án þess að Guðrún réði við neitt. Það gjörsamlega söng í línunni þegar hún bunaðist út og svo slitnaði taumurinn með látum. Tylltum okkur á klöppina, skiptum um taum og settum appelsínugula snældu undir. Fyrsta kast og fiskur neglir fluguna. Eftir um 5 mínútna baráttu þar sem fiskurinn stökk þrisvar fór hann af í það sem hefði væntanlega verið síðasta rokan.
Lax númer 7
Guðrún tyllti sér á bakkann til að jafna sig eftir lætin og ég kasta aftur með appelsínugulu snældunni. Fiskur fer strax í hana en festir sig ekki. Ég set Sun ray undir og fæ strax viðbrögð. Þessir fiskar voru heldur betur í tökustuði. Annað kast og bjartur smálax kemur með þvílíkum látum uppúr til að negla fluguna í yfirborðinu að ég hef aldrei séð annað eins. Fiskurinn finnur að hann er fastur, tryllist og rýkur um allan hylinn með stökkum og látum. Ég tók mjög fast á honum og þegar ég náði honum á land sé ég að í látunum hafði taumurinn vafist utan um sporðinn á fisknum, krókarnir báðir á kaf í bakið á honum, taumurinn undir og myndað þannig snöru utan um fiskinn. Ég hef aldrei séð annað eins en það er ekki furða hversu illa fiskurinn lét. 57 cm hrygna fékk að fara aftur með frekar ljót ör eftir baráttuna.
Lax númer 8 (náðist ekki á land)
Strax eftir að ég hafði sleppt kastar Guðrún Sun ray yfir sama staðinn og hinir höfðu tekið. Í fyrsta kasti tekur fiskur fluguna en eftir um 3 mínútna baráttu losnar út honum. Þarna ákváðum við að segja þetta gott enda komið fram að hléi og við búin að hanga nánast á sama stað í þrjá tíma. Ég hef aldrei lent í svona veislu áður en þegar þetta byrjaði þá bara var nánast endalaus taka. Við settum í fimm fiska á um tveimur tímum og eina skiptið sem við hvíldum staðinn eitthvað var eftir fyrsta fiskinn þegar við veiddum staðinn fyrir neðan í um 20 mínútur.
Lax númer 9 og 10
Valdi fékk einn 69 cm hrygnu í Borgarhyl á seinni vaktinni á kvart tommu þýska snældu og Geiri á sömu flugu í Ármótahyl en sá var 56 cm hængur. Hrygnan fékk að lifa en hængurinn lét lífið.
Lax númer 11
Við Guðrún förum í Neðstubrúnartanga og planið var að renna hratt yfir með Sun ray til að sjá hvort það væri eitthvað fiski þar áður en við færum uppí gljúfur. Þegar við erum að koma að staðnum snýr Guðrún við til að fara uppí bíl að ná sér í jakka. Ég kasta á meðan og þegar hún kemur aftur sný ég mér að henni og spyr hvort við eigum ekki að vaða yfir ána og veiða staðinn frá hinum bakkanum. Á meðan rennur flugan yfir staðinn. Rétt áður en línan réttir úr sér neglir bjartur smálax fluguna. Ég gat ekkert annað en beðist afsökunar. 57 cm hrygna kom á land og fékk að fara aftur.
Lax númer 12
Komið var fram á kvöld og lítið um að vera á efra svæðinu svo að Guðrún fer uppí hús en ég held áfram og fer uppí gljúfur. Rétt undir lokin kasta ég kvart tommu þýskri snældu í Mótorhyl og neðst við stórgrýtið er tekið í. Eftir mjög snarpa viðureign kemur laxinn á land og ég sé strax að það blæðir mikið úr tálknunum. 60 cm hrygna lét lífið þarna á bakkanum og ég þurfti að sækja túpuna lengst ofan í kok. Tók mynd af því.
Laxar númer 13-23
Valdi missti fjóra fiska á ýmsum stöðum og sömu sögu er að segja um Ásgeir sem missti líka fjóra fiska. Ásgeir hins vegar náði þremur í morgun í gljúfrinu sem var fullt af fiski í morgun og greinilegt að fiskur hafði gengið upp um nóttina. Tveir voru teknir í Gljúfurshyl á snældur ef ég man rétt og einn í Rennum á Collie dog tommu túpu.
Semsagt náðum 11 fiskum á land og misstum 12, ekki slæmur túr það. Áin er stórkostleg að mínu mati. Ég hafði komið í hana einu sinni áður fyrir 11 árum síðan en man ekkert eftir því. Þegar lítið vatn er og fiskur hlammar sér á botninn í fáum djúpum stöðum er hundleiðinlegt að veiða hana þar sem maður lemur Ármótahylinn sundur og saman með fiska stökkvandi útum allt í kringum þig. En þegar hún er í eðlilegu vatni eins og þennan eina og hálfa dag eftir rigningu þá er hún æðisleg. Flottir pjúra flugustaðir og flottir pjúra maðkastaðir. Við vorum bara með fluguna en sáum í Fossinum fisk sem var ekki undir 25 pundum. Skriðum fram á klett og horfðum á bakið á honum í 2 metra fjarlægð. Mjög mikið er komið af fiski um alla á og gljúfrið er pakkað af fiski. Strákarnir voru í veislu þar í morgun þar sem þeir settu í 6 fiska og lönduðu þremur. Frábær túr í alla staði og áin hreint út sagt frábær. Við ætlum aftur að ári með allt sem við lærðum í ár í farteskinu.
Kíkið á myndirnar úr túrnum í samnefndri möppu.
Flokkað undir: Veiði, Veiðistaðalýsingar, fluguveiði, flyfishing | Tagged: flugur, laxar, Laxá í Nesjum, laxveiði, myndir, snælda, túpur