Ég var svo svakalega þreyttur í gær þegar ég skrifaði síðasta póst að ég hreinlega nennti því ekki. Var að renna yfir póstinn og sé að það vantar helling í hann og ég ætla að bæta úr því núna með smá statistík úr Laxá í Nesjum.
Þegar við yfirgáfum svæðið í gær voru komnir 70 laxar á land og eitthvað af urriða. Mest hafði veiðst á flugu en þó eitthvað á maðkinn líka. Þeir staðir sem mest eru búnir að gefa eru Ármótahylur, Borgarhylur, Neðstubrúnartangi, Akurneshylur, Gljúfurshylur og Rimahylur. Við sáum fisk í öllum þessum stöðum og Fossinum, Rennum, Stikuhyl, Ytri – Borgum, Teitshlaupi, Hlöðubreiðu, Fossinum og Mótorhyl til viðbótar. Þess ber þó að geta að Mótorhylur heitir í raun ekki Mótorhylur heldur Hvammur ef ég man rétt.
Í Borgarhyl lá fiskur í hálfgerðri klapparrennu sem þarna er, neðan við skiltið þar sem klettur kemur útí ána og þrengir hana austan megin. Í Ytri-Borgum lá fiskur bæði neðst niður á brotinu þar sem strengurinn endar og líka alveg undir strengnum nánast í hvítfryssinu. Í hlöðubreiðu var fiskur bæði í strengnum við austurbakkan, beint neðan við hlöðuvegginn í Akurnesi og í litla strengum sem rennur að austurbakkanum. Í Neðstubrúnartanga lá fiskur á milli þar sem mjó klöpp kemur útí á vesturbakkanum og stórs steins sem brýtur á við austurbakkann. Þarna skilst mér að sé best að veiða frá vesturbakkanum og byrja bara rétt við skiltið. Frábært rennsli þarna, frábær flugustaður. Í Gljúfurshyl láu fiskar beint neðan við skiltið og rétt neðan við stórt grjót sem kemur aðeins uppúr við vesturbakkann. Þar er líka annað stórt grjót sem ekki sést og þeir lágu við það grjót nánast alveg við vesturbakkann. Þarna myndi ég bara byrja efst í hvítfryssinu og vinna mig niður. Getur ekki klikkað.
Jæja ég segi þetta þá gott af umfjöllun um þennan túr en ef einhver hefur áhuga á frekari upplýsingum þá er um að gera að hafa samband við mig.
Flokkað undir: Pælingar, Veiði, Veiðistaðalýsingar, fluguveiði, flyfishing | Tagged: Lax, Laxá í Nesjum, laxveiði, veiðistaðir