Pælingar

Nú styttist í annan endann á þessari veiðivertíð fyrir mig því í næstu viku byrjar skólinn á fullum krafti. Ég er að fara á síðasta árið mitt í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum og hlakka mikið til. Veturinn í vetur mun snúast að mestu leyti um BA verkefnið mitt og Manchester United þó svo efnið sé að öllu óskylt. BA verkefnið mitt mun fjalla um silungsveiði á Íslandi sem er að vísu mjög vítt hugtak en ég á eftir að skoða það betur hvaða vinkil ég muni taka á því efni.

Enski boltinn er farinn að rúlla sem betur fer því það er eitthvað sem heldur mér þolanlega andlega heilbrigðum yfir vetrartímann meðan ég kemst ekki til veiða. Yfir veturinn skipti ég þráhyggjunni frá veiðinni og yfir á Manchester United og því er viðbúið að skrif mín hérna í vetur muni kannski að einhverju leyti fjalla um enska boltann, sjáum til.

Framundan eru tveir skemmtilegir veiðitúrar en ég hef veiðar í Laxá á Refasveit (ekki innsláttarvilla hún heitir Laxá Á Refasveit) á fimmtudag og verð fram á laugardag. Þaðan fer ég yfir í Skagafjörð, nánar tiltekið á Hóla en fimmtudaginn 4. september hef ég veiðar í mjög góðum félagsskap í Haffjarðará og hlakka ég mikið til þess. Það dæmi kom mjög snöggt uppá og ég gat ekki annað en þegið það boð enda ekki á hverjum degi sem maður dettur inná svoleiðis tækifæri.

Þar sem ég verð einn á stöng í Laxá á Refasveit verð ég sennilega ekki með eins mikið af myndum og þegar ég deili stöng en ég mun samt reyna að mynda alla veiðistaði í bak og fyrir. Þangað er ég að fara í fyrsta sinn og ef okkur líkar að þá munum við feðgar væntanlega fara þangað aftur á næsta ári. Þegar ég kem að nýrri á sem ég hef ekki veitt í áður þá byrja ég alltaf yfirferðina mína mjög hratt og skima hvern einasta stað eftir að ég hef veitt hann til að sjá betur hvernig landið liggur. Kannski er þetta ekki rétt af mér að gera en svona hef ég lært betur á staðina og veit þá frekar hvernig ég á að veiða þá næst þegar ég kem.

Ég er búinn að hnýta skærar flugur í öllum stærðum og gerðum til að hafa með mér í þessa síðustu túra þar sem nú hef ég mikla trú á skærum litum hehehehhe svona get ég verið ruglaður. Konan mín vill meina að ég geti ekki farið í veiðibúð án þess að kaupa mér flugur en samt er ég að hnýta á fullu líka. Svona fer þráhyggjan með mann. Ég vona að með aukinn veiðireynslu geti ég farið að vera bara með eitt box á mér, eina spólu af taumefni, eina stöng, málband, klippur og flugulosara en ekki allt þetta drasl sem ég er með í vösunum núna. Sem betur fer eru tveir vasar á vöðlunum mínum. Ég gerði tilraun til að raða í eitt box í gær en eftir miklar hárreytingar ákvað ég að best væri bara að vera með tvö box í staðinn fyrir að láta valkvíðann gera útaf við mig. Alveg magnað að ég skuli alltaf vera með haug af flugum á mér en nota svo alltaf bara sömu flugurnar.

Eins og ég hef áður sagt hafa viðbrögðin við blogginu farið framúr björtustu vonum mínum og ég vona sannarlega að ég hafi lagt mitt af mörkum til að auðvelda veiðimönnum lífið. Ég hef sjálfur lært mikið af þessu og þó menn hafi á stundum ekki viljað kommenta hérna þá hafa margir látið mig heyra það á förnum vegi, gefið mér góð ráð og sagt mér ef ég er að bulla tóma steypu. Fyrir mér snýst fluguveiðin einmitt um þetta og eitt það allra besta sem ég gerði í sumar var að fara aftur á kastnámskeið hjá Hilmari Jónssyni (ef ég man fullt nafn rétt, fyrir mér er hann Himmi Kast). Hilmar kenndi mér ótrúlega mikið sem ég hef notað í sumar og ekki bara varðandi köstin heldur líka bara hvernig gott er að bera sig að við veiðar. Svona á að gera þetta, fá lánaða reynslu og dómgreind annara og bæta henni við eigin reynslu og dómgreind, svo lengi lærir sem lifir. Þetta hljómar allt eins og einhver kveðjuræða en svo er alls ekki þar sem ég mun halda áfram að röfla hérna í allan vetur og um ókomin ár því þetta er svo svakalega skemmtilegt. Ég hef svo svakalega gaman af því að segja sögur og tala um veiði og þegar konan er gjörsamlega búin að fá ógeð á mér þá sest ég bara við tölvuna og blogga og næ þannig að fullnægja þessari þörf.

Laxá á Refasveit er næsta mál á dagskrá og öll góð ráð eru vel þegin í þeim efnum. Hafi menn eitthvað að segja mér um ána væri ég voða þakklátur ef mér yrðu sendar línur þess efnis á stjaniben@stjaniben.com

Skildu eftir svar