Nú vantar mig aðstoð veiðimanna!!!

Ég er að fara í Laxá á Refasveit á morgun og mig vantar aðstoð veiðimanna áður en ég fer. Það lesa þetta svo svakalega margir og mér datt í hug að nýta tækifærið og fá góð ráð frá mönnum. Ég hef ekki mikla reynslu af laxveiði og ég þarf að vita hvað menn taka til bragðs svona á “haustin”. Eru það skæru litirnir sem virka? Er það Sun ray shadow sem er að virka á hængana núna? Hvað er málið? Hvað á ég að prófa í næstu túrum?

Ég var að skoða veiðibók Breiðdalsár og síðustu laxar eru allir teknir á snældur, sun Ray, frances eða Collie dog. Ég set nánast samasemmerki við Collie og Sun ray og kalla þýsku snælduna skæra flugu. Ég geri ekki mikið af því að hreinlega biðja menn um að kommenta en nú bregð ég útaf vananum og bið um aðstoð. Nú er um að gera að sem flestir segi sína meiningu og við fáum einhvern svona reynslubanka hérna þar sem allir geta lært eitthvað nýtt og miðlað reynslu sinni til annara.

8 svör

  1. Sælir,

    Á haustin virka oftast vel skæru litirnir. Sun Ray, Snældurnar og Colly Dog gera alltaf góða hluti. Taktu einnig með þér Munroe Killer, Black Bear / Green But túbu, Cascade, Hauginn og auðvitað Frances (rauðann,svartann,gulann og orange).

    Hefur gefið mér ágætlega að vera með intermediet línu faðm í taum og strippa t.d. þýsku snælduna á svarta tvíkrækju nr 12.

    Annars segji ég bara Tight Lines & Screaming Reels!.. Góða skemmtun.

    Kv,

    Sigurberg

  2. Ég er búinn að hnýta og pakka Silver sheep, Black sheep, Willie Gunn, Cascade, Garry, Green Highlander, Munroe Killer og Green Brahan longtail. Boxið er orðið frekar gult á að líta. Takk fyrir Sibbi

  3. Flott mál gott ef að þetta getur hjálpað þér einhvað.

    Góða skemmtun
    Kv,

    Sibbi

  4. sæll, les oft bloggið hjá þér og hef gaman af og ætla að verðlauna þig í staðinn með þvílíku leyniráði að það nær ekki nokkurri átt.
    Taktu með þér fjólublátt, td fjólubláa útgáfu af Allys shrimp.
    Gangi þér vel

  5. Sæll Ævar, Hvar nálgastu fjólubláa útgáfu af Allys shrimp? Hnýtiru hana sjálfur bara? Mátt endilega senda mér mynd. Hef hnýtt Dimm Blá með fjólubláu í staðin fyrir blátt og það hefur gefið fínt.

    Kv,
    Sigurberg

  6. Á haustin hefur mér gefist best að stækka allar flugur (túbur), fara úr flugum í túbur í litlum og meðalstórum ám og úr túbum í túbuhlussur (t.d. 2 túbur saman) í stærri ám. Appelsínugult gefur fínt á haustin, eins og gult og grænt, mitt uppáhald er þó Black Sheep með keiluhaus.
    Lax-á á Refasveit er væntanlega frekar vatnslítil núna þannig að þú ættir ekki að þurfa stórar túbur – en hafðu samt nokkrar með og alls ekki gleyma SunRay, hann hefur alltaf reynst mér vel.

  7. ég hef keypt flugur nokkrum sinnum á selectafly.com og hafa þær reynst mér mjög vel. copyaðu linkinn og hann ætti að taka þig á salmon double hook flugur hjá þeim og þar geturu séð mynd af flugunni

    http://www.selectafly.com/fly-fishing-products.asp?CategoryID=42&CategoryName=Salmon%20Double%20Hooks

  8. Black N Blue tommu cone getur ekki klikkað á stóru hængana á haustinn.

Skildu eftir svar