Haffjarðará – Fjórði hluti

Þessi taka fyrir hádegi hafði allt að segja fyrir andlegt ástand mitt og ég fann það á mér að ég var að detta í stuð. Fyrsti staðurinn var Kúla þar sem við sáum lax stökkva þegar við lögðum bílunum rétt við staðinn. Ég er svo heppinn að eiga vingjarnlegan og hjálpsaman frænda sem vill svo skemmtilega til að er gæd þarna í Haffjarðará. Hann var með okkur á svæði og sýndi mér hvernig maður á að veiða Kúlu og fyrsta umferð var með hitch túpu. Eftir nokkur köst kom fiskur í hitchið án þess þó að taka. Þetta var það sem ég þurfti og ég fann adrenalínið flæða um æðar mér. Adrenalínið fór vel í spennuna og ég róaðist strax niður. Þetta er það sem gerir það að verkum að ég er veiðifíkill. Þetta adrenalín stuð sem ég fæ þegar fiskur tekur fluguna hjá mér. Þarna var ég tilbúinn að leggja frá mér stöngina og njóta augnabliksins í smá stund en ég ákvað að halda áfram. Ekki vildi sá silfraði þær flugur sem við buðum honum í Kúlu en ég hafði orð á því við veiðifélagana að nú væri ég orðinn rólegur og myndi núna detta í gang, ég væri viss um það.

Hellisfljót er með flottari veiðistöðum sem ég hef séð um ævina og eftir að hafa kastað mörgum smáum flugum yfir þann stað án árangurs lagði ég smáflugurnar á hilluna í smá stund og tók fram nasistann!! Ég settist á bakkann beint framan við hellinn og kastaði þeim þýska upp í strauminn. Þannig náði ég að koma túpunni djúpt og þegar hún rann framan við hellinn fann ég að tekið var í. Hann var á. Ég fann sælustrauma þjóta um æðarnar og var gjörsamlega sallarólegur. Nú virtist eins og lífið væri spilað í slow motion og ég stóð varlega upp og fór að hala inn slakann. Fiskurinn var gjörsamlega trylltur og stökk samtals fimm sinnum þar til frændi minn sem hafði verið að veiða Hamarsfljótið tók hann í háfinn. Fiskurinn reyndist 71 cm langur hængur og var sá frelsinu feginn. Ég lagðist á bakkann, lokaði augunum og eitt augnablik var ég algjörlega slakur. Lífið verður ekki betra en þetta. Þetta er það sem ég er fíkinn í. Bölvuninni var aflétt og nú var ég loksins rólegur.

Næsti staður var Nesendi sem lét nú frekar lítið yfir sér en þar áttum við eftir að lenda í ævintýrum. Geiri og Guðbjörg fóru í neðri Nesenda en við pabbi veiddum strenginn við bílastæðið. Ég hafði nú ekki mikla trú á þessum streng því ekki leit hann út fyrir að vera neitt og mér fannst maður standa gjörsamlega ofan í strengum þarna á bakkanum. Geiri fullvissaði okkur um að þarna væri fiskur og þegar lax stökk neðst í strengnum tók það af allan vafa. Eftir að hafa reynt hitchið og fjölda smárra flugna var komið að því að skipta í eitthvað stærra. Með tauminn í lúkunum heyri ég kallað. Geiri var búinn að setja í fisk fyrir neðan okkur. 61 cm hrygna hafði tekið hálftommu rauðan Frances með keilu og fékk að fara aftur þegar búið var að losa.

Nasistinn fékk að fara í strenginn og neðarlega neglir 61 cm löng hrygna túpuna með látum. Mæld og strokin fékk hún að fara aftur í ána til að ljúka ætlunarverki sínu. Pabbi skiptir í Blue charm tommu túpu og kastar í strenginn en án árangurs. Að lokinni yfirferð réttir hann mér stöngina en í stað þess að skipta leyfði ég sjarmernum bláa að vera áfram. Í öðru kasti er hann á. 64 cm langur hængur lét öllum illum látum áður en við slepptum honum aftur í ána. Pabbi fer aðra umferð með sömu túpu en án árangurs. Ég tek við stönginni og í fyrsta kasti er hann aftur á. 68 cm hængur hafði kokgleypt fluguna og það reyndist ómögulegt að sleppa honum aftur. Þarna var ég kominn með þrjá laxa á stuttum tíma úr sama hylnum og fjóra í heildina á þessari vakt. Það er naumast að það skiptir máli að vera rólegur.

Við sögðum þetta gott og kvöddum Nesenda. Veiddum Lower junction og Hanlons áður en við fórum í hús en án árangurs. Fimm laxar á vaktinni fyrir okkar svæði og ég var í skýjunum. Það skipti öllu máli að fá þessa töku fyrr um daginn og ég tala nú ekki um þegar fiskurinn kom í hitchið. Það var allt sem þurfti til að róa mig niður og um leið og sá fyrsti kom var eftirleikurinn auðveldur. Kennir manni þá mikilvægu lexíu að vera bara rólegur.

Gufubaðið var notalegt í veiðihúsinu og maturinn hreint út sagt stórkostlegur. Þau kunna að stjana við mann í Haffjarðará. Þegar ég svo kom inn í herbergi til að fara að sofa var búið að gera rúmið klárt fyrir mig. Frábær endir á frábærum degi.

Ein ummæli

  1. Sælir,

    Flott að það gekk vel hjá þér í veiðinni og já ég er sammála þér í því að það skiptir mjög miklu máli að vera rólegur. Þeir virðast finna þetta i gegnum línu laxarnir..

Skildu eftir svar