Fyrsta myndbandið úr Haffjarðará komið á netið!!

Var að henda því inn í Veiðimyndbönd (efsta myndbandið.. í bili). Þetta er myndband af karlinum með lax í Kvörninni. Fiskurinn lét öllum illum látum og tókst meðal annars að vefja línunni um stein. Það fór hins vegar allt saman vel. Fleiri myndbönd fara að detta inn med det samme svo að það er rétt að fylgjast með.

UPDATE!!!!!!!!!!!!

ég er svo snöggur að þessu að nú er myndband númer tvö komið í Veiðimyndbönd. Það sýnir undirritaðan taka fisk í Hellisfljóti í Haffjarðará. Svo skemmir lagið ekki fyrir!!!!

9 svör

  1. Flott myndbönd hjá þér. virkilega gaman að skoða.

    Kv,Sigurberg

  2. Flott myndbönd en það mætti alveg sleppa helv… Scum United tónlistinni!!!!!!

    YNWA

  3. HEHEHEHE Aron þetta er bara trúboð.. spreading the glory. Fyrir hvað stendur YNWA?

    You’ll never walk again?

  4. Þú hlærð ekki svona dátt eftir laugardaginn!!!!!

  5. Það er rétt hjá þér. Það skyldi þó ekki vera að Loserpool tækist loksins að vinna Man Utd. Ég dreg það þó í efa þar sem þá skortir þessa sigurreynslu ;)

  6. Sammála Aroni. Hefðir frekar mátt setja YNWA ;) Poolararnir taka þetta á laugardaginn!:D

  7. Ég er ánægður með þessa síðu hjá þér Stjáni, gott framtak Gaman að sjá veiðimyndbönd og skemmtilegt blogg
    kveðja Nonni

  8. Það þýðir ekkert að afsaka sig með lélegum leik sinna manna, Rauði herinn leyfði þeim ekkert að komast upp með neitt múður.

    Legg til að setjir YNWA í eitt myndbandið fyrir okkur Looserpoolarana!!

  9. Nú?? Það er skrýtið þar sem það virðist hafa verið viðkvæðið hjá þessum svokallaða “rauða her” þínum í öll síðustu skiptin sem United hafa tekið ykkur í kennslustund. Man ekki betur en síðast hafi það verið Mascherano að kenna… Þó svo United hafi leyft ykkur að taka einn leik þá var það sennilega bara af vorkunn við stuðningsmenn ykkar sem höfðu ekki séð Liverpool vinna meistarana á Anfield í sjö ár.

    Annars er þetta bara leikur og svona skoðanaskipti eru það sem gera hann svona skemmtilegan. Ég skal taka það til íhugunar að spila “You’ll never walk again” undir næsta myndbandi ;)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.