Þegar ég kom heim í dag hundfúll yfir lélegum leik minna manna var ég hálf öfugsnúinn eitthvað og vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera. Veðrið var alveg frábært og tilvalið að skella sér að veiða en ég var samt eitthvað óviss og óákveðinn. Hringdi í konuna og hún hvatti mig að skella mér að veiða og gleyma þessum leik bara svo að ég hringdi í Bjarna í Hvalnesi umsjónarmann Vatnasvæðis Selár á Skagaheiði og spurði hann frétta. Hann var ekki vongóður um að fiskurinn tæki neitt á þessum árstíma en veðrið væri gott og tilvalið að prófa það allavega. Ég þurfti ekki að láta segja mér þetta tvisvar og henti mér í gallan og af stað. Á leiðinni upp eftir kom ég við hjá Bjarna og skráði mig og lét hann mig hafa kort af svæðinu. Ég hafði aldrei komið á Skagaheiði áður og þvílík paradís sem þetta er. Mig grunaði að á þessum árstíma myndi ég finna urriðann við útfall eða þar sem rennur í vötnin og í lækjum sem renna í og úr vötnunum þar sem hann væri farinn að gera sig kláran í að hrygna. Með þetta í huga ákvað ég að fara þangað sem rennur úr Ölvesvatni og yfir í Fossvatn og prófa þar fyrst en á leiðinni sá ég að það var styttra að labba beint að Fossvatni þar sem rennur í það. Ég sá greinilega strauminn langt útí vatnið og hvar var djúpt í þeirri straumrennu svo að þar ætlaði ég að byrja. Lítill hvítur nobbler fór undir og ég lúðraði honum þarna í strauminn. Hann var á í fyrsta kasti og það ekkert smá sterkur fiskur. Mér fannst ég vera kominn með eitthvað risa kvikindi á hjá mér en þegar hann svo kom loks að landi sá ég að hann var ekki meira en 2 – 2,5 pund en hnausþykkur fiskur, stuttur en þykkur. Tók tvo til viðbótar þarna á næsta kortérinu og ákvað þá að skoða mig um þarna á svæðinu og held áfram upp með ánni.
Það hafði byrjað að rigna þegar ég kom en nú hafði stytt upp, dottið niður í dúnalogn og sólin farin að skína. Það þýðir bara eitt… fluga. Og með flugunni byrjuðu uppítökurnar svo að ég skellti þurrflugunni undir og náði í einn frekar smáan urriða. Skipti aftur yfir í straumflugu, ólífugrænan nobbler og hélt áfram þar til ég kom að næsta hyl. Kastaði nobblernum andstreymis beint í strauminn og strippaði hratt. Ég fékk nærri hjartaáfall þegar urriði kom allur uppúr og negldi fluguna. Ég endaði með að taka 18 urriða frá pundi og uppí 2,5 pund úr þessum hyl og allir tóku þeir með svona svaðalegum látum. Mig grunaði að það myndu eflaust fáir trúa mér þegar ég segði frá þessum snarklikkuðu tökum svo að ég ákvað að stilla myndavélinni minni upp á þúfu með fluguboxi undir og taka video af þessu. Þá fór ég og kastaði á hylinn, tók þrjá fiska í beit og fór þá og slökkti á myndavélinni. Þá hafði ég tekið upp 8 mínútur af efni.
Sólin hafði sest og ég var hræddur um að það yrði myrkur fljótlega svo að ég fór að koma mér tilbaka en tók fjóra urriða á leiðinni útí bíl, einn í ánni og þrjá í Fossvatni. Þetta var einhver allra besta og skemmtilegasta upplifun sem ég hef átt í veiði, gjörsamlega einn uppá heiði í mokveiði. Algjör kyrrð fyrir utan sönginn í himbrimanum og suðið í flugunum, fiskur stökkvandi og uppítökur um allt. Getur varla verið betra. Ég tók tvo litla urriða með mér heim í soðið en skilaði hinum aftur. Ég er jafnvel að hugsa um að fara aftur á morgun. Er að græja myndbandið og skera það til þar sem ég get ekki sett það beint á youtube eins og það er núna. Er líka að setja inn myndir. Endaði með 26 urriða á þremur tímum og ég verð að segja það að fiskurinn þarna er firnasterkur.
Filed under: fluguveiði, flyfishing, Veiði, Veiðistaðalýsingar Tagged: | ölvesvatn, eiðsá, fossvatn, Skagaheiði, urriði
Sælir,
Skemmtileg lesning og hlakka til að sjá þessi video. Þetta er greynilega svæði sem að maður verður að prófa.
Kv,
Sibbi
í einu orði geggjað! bíð spenntur eftir myndbandinu
Myndbandið er komið í Veiðimynbönd. Það er efsta myndbandið.