Veiðiútgáfan þessi jólin – Fyrsti hluti

Ég sagði frá því á dögunum að það væri að koma út núna fyrir jólin bók um Straumflugur í sama stíl og Laxaflugur fyrir tveimur árum. Í kjölfarið af þessu fór ég að grafast fyrir um það hversu umfangsmikil veiðiútgáfan fyrir þessi jól væri og þar kom ýmislegt í ljós. Enn er ekki víst með allar bækur og ég ætla því ekki að vera að ljóstra neinu upp þar ef svo ekkert verður úr því. Það skýrist þó vonandi fljótt og þá kalla ég þennan póst: Veiðiútgáfan þessi jólin – fyrsti hluti.

Ég hef nú fengið í hendurnar kápumyndir af tveimur bókum sem eru alveg við það að koma í búðir og mun ég því fjalla um þær tvær til að byrja með. Sú fyrsta er sú sem ég sagði frá um daginn, Straumflugur eftir Sigurð Pálsson í bókaflokknum Í Íslenskri náttúru með myndum Lárusar Karls Ingasonar.

Kápumynd bókar Sigurðar Pálssonar, Straumflugur

Kápumynd bókar Sigurðar Pálssonar, Straumflugur

Eins og fram kom í póstinum um bókina um daginn er hér um “sjálfstætt” framhald af bókinni Laxaflugur, sem kom út árið 2006, að ræða en báðar þessar bækur eru í bókaflokknum Í Íslenskri náttúru. Nú er það enginn annar en Sigurður Pálsson sem ritstýrir, velur flugur, hnýtir flugurnar og skrifar textann. Lárus Karl Ingason tekur myndirnar og sér um útgáfu. Bókin er hrikalega spennandi og kærkomin viðbót við hnýtingaflóruna.

En það er fleira spennandi að koma út því flugukastsnillingurinn, sem allir Íslenskir fluguveiðimenn (allavega flestir) ættu að þekkja, Henrik Mortensen kemur nú með flugukastkennslu sína á prenti undir nafninu Flugukast… Norræna aðferðin.

Kápumynd bókar Henriks Mortensen um fluguköst

Kápumynd bókar Henriks Mortensen um fluguköst

Henrik hefur gefið út allavega fjórar (ef ekki fleiri) DVD myndir um fluguköst og mikið af myndefni í þeim hefur verið tekið upp á Íslandi. Meira veit ég nú ekki um Henrik en ég get vottað það að maðurinn er í Guða tölu á Norðurlöndunum fyrir flugukast snilli sína (hef þær heimildir frá Norðurlandabúum sem ég hef verið að leiðsegja). Hvað um það, í þetta sinn eys hann úr visku brunni sínum á pappír og nú er útkoman úr þeirri ausu að koma út. Hér er textabrotið sem ég fékk sent með kápumyndinni en ég mun svo koma með beinskeytta gagnrýni á báðar bækur þegar þær eru komnar út og ég fengið tækifæri til að fletta þeim.

Flugukast – norræna aðferðin

Höfundur er listamaður í að handleika flugustöng og dugmikill kennari. Í þessari bók eys hann úr brunni visku sinnar um kúnstina að kasta flugu eins og best verður á kosið.  Í áranna rás hefur hann ferðast vítt um heim og bleytt flugur sínar hvar sem laxar eða sjóbirtingar bæra ugga. Reynsla hans og kunnátta í flugukasti og veiðum er víðkunn, einnig hér á landi. Um 400 ljósmyndir og teikningar prýða bókina – margar myndanna eru teknar á Íslandi.

Það er Bókaútgáfan Ormstunga sem gefur út og bókin er væntanleg um næstu mánaðamót. Ég geri hvað ég get að grafa upp frekari upplýsingar um báðar bækurnar sem og þær sem fyrirhugað er að gefa út en fengu ekki umfjöllun í þetta skiptið. Fylgist vel með næstu köflum í þessari umfjöllun. Það er ljóst að það verður úr ýmsu að moða um jólin fyrir stangveiðimenn. Ég sé það fyrir mér að menn verði í bunkum með bækurnar sínar að hnýta flottar straumflugur og úti á túni að æfa köstin um jólin.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.