Flugukast… Norræna aðferðin

Það verður seint sagt að ég leggi ekki á mig ómælda rannsóknarvinnu við að flytja ferskar fréttir hérna. Undanfarið hefur það varla farið framhjá neinum að ég hef verið að flytja fréttir af veiðibókaútgáfunni fyrir þessi jólin sem nálgast okkur óðfluga. Ég fékk í hendurnar um daginn eintak af Straumflugur, bók Sigurðar Pálssonar og Lárusar Karls ljósmyndara og sagði frá henni. Fyrir stuttu hafði ég líka sagt frá annari bók sem væri að koma, Flugukast… Norræna aðferðin eftir Henrik Mortensen flugukastsnilling með meiru. Sú bók var ekki klár þegar ég var á ferðinni í gær og því gat ég ekki fengið að fletta henni nú um helgina til þess að geta sagt meira frá henni. Ég er staddur í höfuðborginni um helgina og hafði vonast til að geta gluggað í eintak en fékk þær fréttir að það væri bara verið að prenta gripinn. Ákvað ég þá bara að gera mér ferð upp í Prentsmiðjuna Odda þar sem bókin var í prentun og Straumflugur hafði verið prentuð líka.

Kápumynd bókar Henriks Mortensen um fluguköst

Kápumynd bókar Henriks Mortensen um fluguköst

Odda menn eru ekkert nema snillingar í því sem þeir gera og þar sem ég hafði fengið leyfi útgefanda til að kíkja á gripinn leyfðu þeir mér að sjá óþýdda útgáfu sem verið var að vinna með í prentsmiðjunni. Bókin er stór og mikil með mikið af bæði flottum ljósmyndum og teikningum. Þarna rakst ég m.a. á kafla sem ber heitið Norrænt spey kast með einhendu og það er t.d. kafli sem ég hlakka til að lesa nú um jólin. Ég er á því að maður geti alltaf verið betri kastari og jafnvel þó ég sé búinn að fara á tvö kastnámskeið hef ég enn ekki komist nægilega vel upp á lagið með að veltikasta með einhendunni. Hvað um það, við frúin komum til með að nýta bókina vel og ekki síður þegar kemur að því að kenna krökkunum fyrstu skrefin í fluguköstum.

Starfsmaður Prentsmiðjunnar Odda að vinna við arkirnar i gær

Starfsmaður Prentsmiðjunnar Odda að vinna við arkirnar í gær

Ég spurðist fyrir um bókina og fékk þau svör að það væri bara verið að prenta hana í þeim töluðu orðum og med det samme var mér boðið í prentsalinn að mynda gripinn fyrir forvitna lesendur. Hér fyrir neðan má sjá myndir af örkunum eins og þær eru þegar þær renna út úr prentvélunum hjá prentsmiðjunni Odda. Eins og glöggir taka nú eftir er heilmikil vinna eftir í bókbandi, pökkun, dreifingu og fleira áður en hún verður klár í jólapakkann þetta árið en von er á henni í búðir um eða eftir mánaðamót. Hvað varðar Straumflugubókina þá ætti hún að vera komin í búðir um eða eftir helgi en ég rak augun í skráningu á henni hér.

(Update 24. nóv.) Nú er hægt að skoða opnur úr bókinni og panta hana á tilboðsverði á www.ormstunga.is. Efst á forsíðunni á að vera banner fyrir bókina og ef maður klikkar á þann banner þá kemst maður í allar upplýsingar um bókina, þar á meðal opnur sem gera manni kleift að blaða aðeins í gegnum hana.

Ein ummæli

  1. Flott umfjöllun. Held að ég verði að eignast þessa bók strax og hægt verður. Sendi pöntun strax á Ormstungu. Takk fyrir þessi skrif Stjáni… haltu áfram.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.