Posted on maí 30, 2009 by stjaniben
Skaust aðeins í Minnivallalæk í gær að sýna veiðimönnum sem þar voru hvar fisk væri helst að finna. Kom á staðinn í
vægast sagt ógeðslegu veðri, hávaðaroki og rigningu. Eftir að hafa reynt við Arnarhólsþrengslin, Arnarhólsbreiðu og flúð var ákveðið að hendast aðeins í Stövarhylinn fyrir hádegismat.
Efst í Stöðvarhylnum fékk veiðimaður fallegan c.a. 2 punda urriða [...]
Flokkað undir: Veiði, fluguveiði, flyfishing | Tagged: black ghost, minnivallalækur, urriði | 1 ummæli »
Posted on maí 25, 2009 by stjaniben
Jæja þá er kallinn kominn í hóp veiðileyfasala. Áin sem ég hef nú leigt heitir Grafará og er við Hofsós í Skagafirði. Sjálfur hef ég enn ekki veitt í ánni en þar ku vera fínasta sjóbleikjuveiði. Hef ég nú lítið annað fyrir mér í því en það sem ég hef sjálfur lesið um ána og [...]
Flokkað undir: Veiði, Veiðistaðalýsingar, fluguveiði, flyfishing | Tagged: grafará, hofsós, sjóbleikja, skagafjörður | 1 ummæli »
Posted on maí 22, 2009 by stjaniben
Síðustu dagar hafa sannarlega verið viðburðaríkir. Er búinn að mokveiða með krökkunum, búinn að ganga frá leigusamning á Grafará við Hofsós og er búinn að útskrifast frá ferðamáladeild Háskólans á Hólum með BA gráðu í ferðamálafræði.
Á miðvikudag fór ég með fjölskyldu norður í Skagafjörð. Seinni partinn þann dag fóru fram varnir á lokaverkefnum og að [...]
Flokkað undir: fluguveiði, flyfishing | Tagged: grafará, skagafjörður | 2 ummæli »
Posted on maí 17, 2009 by stjaniben
Það þarf víst ekkert að nefna hana neitt sérstaklega blíðuna sem glatt hefur hjörtu borgarbúa undanfarna daga. Við fjölskyldan ákváðum að skella okkur í Urriðakotsvatn nú síðdegis að eyða þessum örfáu möðkum sem til voru á heimilinu. Það fer ekkert vel í frúna að vera með maðka í ískápnum og það er svo sem ekki [...]
Flokkað undir: Veiði, fluguveiði, flyfishing | Tagged: fjölskylduveiði, nobbler, urriðakotsvatn, urriði | Leave a Comment »
Posted on maí 15, 2009 by stjaniben
Undanfarið hef ég verið að upplifa smá lægð í aflabrögðum. Ég er búinn að fara oft og veiða lítið. Síðast í gær eyddi ég öllum deginum við veiðar í vötnum í nágrenni Höfuðborgarsvæðisins en algjörlega án árangurs. Kannski skynja fiskarnir einhvern smá kvíða í mér en í næstu viku fer fram bæði útskrift frá Háskólanum [...]
Flokkað undir: Pælingar, Veiði, fluguveiði, flyfishing | Leave a Comment »
Posted on maí 3, 2009 by stjaniben
Undanfarna daga hef ég fylgst grannt með Belging.is til að tímasetja veiðidag fjölskyldunnar upp á besta veðrið.
Dagurinn í dag var sá dagur sem best leit út og þegar við fórum á fætur “snemma” í morgun var útlitið hreint út sagt frábært. Stefnan var tekin á Apavatn því þar hef ég oft gert góða veiði undanfarin [...]
Flokkað undir: Pælingar, Veiði, fluguveiði, flyfishing | Tagged: apavatn, Þingvallavatn, úlfljótsvatn, fjölskylduveiði, Veiðikortið | Leave a Comment »
Posted on maí 2, 2009 by stjaniben
Fór í kvöld í smá veiði með stjúpsyni mínum sem er 12 ára. Byrjuðum í Kleifarvatni og reyndum fyrir okkur þar en án árangurs. Heyrðum af fínni veiði þar undanfarna daga en klikkuðum að spyrja hvar og hvernig. Gáfum Kleifarvatninu ekki mikinn séns áður en við komum við í Urriðakotsvatni á leiðinni heim.
Lögðum bílnum við [...]
Flokkað undir: Pælingar, Veiði, fluguveiði, flyfishing | Tagged: 1. maí, silungsveiði | Leave a Comment »