Galtalækur í góða veðrinu í gær

Undanfarna 20 daga hefur veitt hér á landi bandaríkjamaður á mínum vegum og hann hefur veitt vel. Síðasti dagurinn hans var í gær og mér tókst að hafa uppi á leyfi fyrir hann í Galtalæk með ótrúlegri heppni. Hann hafði veitt þar einn dag áður og gert góða veiði og vildi ólmur komast aftur. Fyrir, [...]

Stórir urriðar úr Minnivallalæk

Loksins þegar ég hef tíma til að skrifa er um að gera að moka bara inn nýjum póstum. Betra samt að aðskilja hverja veiðiferð fyrir sig. Marg umræddur bandaríkjamaður sem fór með okkur strákunum á Grímstunguheiði hefur undanfarnar vikur flakkað um landið að veiða silung. Í gær veiddi hann í Minnivallalæk og ég fór með [...]

Ævintýri á heiðum part 2.

Gegnum þétta þokuna sáum við glitta í bílinn og ég segi sem betur fer því GPS tækið vildi fara með okkur allt annað. Við komumst aftur í skála og þar biðu okkar Geiri og Valdi með bros á vör. Það var eitthvert svona skítaglott á þeim. Þeir höfðu greinilega haft meira uppúr krafsinu en við. [...]

Opnunin í Grafará

Jæja þá er búið að opna Grafará og verður að segjast að heldur var opnunin dauf því aðeins tvær bleikjur komu á land í þá tvo daga sem opnunarhollið var við veiðar. Það er vonandi að rætist úr núna fljótlega og sjálfur er ég að fara norður í byrjun júlí og næ þá vonandi að [...]

Ævintýri á heiðum

Síðustu tvær vikur er ég búinn að vera á þeytingi víða um land. Nú síðast fór ég hringinn með fjölskylduna og fellihýsið í eftirdragi. Þar á undan fór ég með félögum á Grímstunguheiði þar sem við eyddum tveimur dögum við veiðar. Upprunalega planið var að vera lengur en ýmsir þættir urðu til þess að við [...]

Grafará opnar í dag

Í dag opnar Grafará formlega fyrir veiðimenn. Ég bíð spenntur eftir fyrstu fréttum og læt þær flakka hér inn um leið og þær berast.

Að veiðum á heiðum

Undanfarna daga hef ég verið við veiðar á heiðalöndum fyrir norðan. Þar má finna mikið af hrikalega flottu vatni, bæði rennandi og stöðu. Við gengum mikið um heiðarnar og veiddum alla álitlega hylji en höfðum ekki mikið uppúr krafsinu. Þær bleikjur sem við fengum voru þó nokkuð myndarlegar. Því næst fórum við niður af heiðinni [...]

Staðará – Seinni hluti

Ég gleymdi sennilega að taka það fram að Geiri fékk einn lítinn sjóbirting þarna um morguninn á hvítan nobbler. Eftir hádegismatinn og léttan legging fórum við Geiri aftur niður að á en leyfðum Valda að lúlla aðeins lengur. Ég hélt áfram með sömu taktík og um morguninn en Geiri fór ofar á svæðið og hélt [...]

Staðará á Snæfellsnesi – fyrsti hluti

Við komum á staðinn um kl. 19 á miðvikudag og samkvæmt flóðatöflu átti að vera háfjara kl. 22:16. Eitthvað bar nú á misvísandi skilaboðum um það hvenær best væri að vera við veiðar og hvar. Sumir vildu meina að best væri að vera á fjörunni, aðrir á flóðinu og enn aðrir þegar færi að flæða [...]

Stutt fréttaskot úr Staðará

Var að lenda heima eftir tvo daga í Staðará á Sæfellsnesi. Fengum c.a. 80 bleikjur, einn birting, eitt laxaseiði og sex flundrur. Tók haug af myndum og myndböndum sem ég þarf að hafa tíma til að vinna. Hef ekki tíma til að klára þennan póst núna en set inn alla söguna þegar ég hef tíma [...]

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.