Við komum á staðinn um kl. 19 á miðvikudag og samkvæmt flóðatöflu átti að

Komnir á staðinn og farnir að gera klárt
vera háfjara kl. 22:16. Eitthvað bar nú á misvísandi skilaboðum um það hvenær best væri að vera við veiðar og hvar. Sumir vildu meina að best væri að vera á fjörunni, aðrir á flóðinu og enn aðrir þegar færi að flæða að. Okkur var eiginlega slétt sama því við vorum komnir til að njóta lífsins.
Við valdi veiddum þarna í fyrra og veiddum vel af frekar smárri

Þær bleikjur sem við tókum í "soðið"
bleikju. Ég og Geiri ákváðum að kíkja þangað sem við höfðum verið að fá hann í fyrra en Valdi ákvað að byrja neðst og vinna sig upp. Af því að Bleik og blá hafði virkað vel í fyrra fékk hún að byrja núna. Eftir c.a. klukkutíma kastæfingu ofarlega á ósasvæðinu röltum við Geiri tilbaka og sjáum í fjarska að Valdi er með ‘ann í flottum streng frekar neðarlega. Eitthvað klikkaði nú því stuttu seinna var allt slakt og Valdi með tauminn í lúkunum. Við Geiri fórum að kasta á næstu tvo strengi fyrir ofan og eftir stutta stund heyrði ég að Geiri var kominn með fisk fyrir ofan mig. Svo fékk ég fyrstu bleikju túrsins á bleika flugu sem Guðrún kærasta mín hnýtti fyrir mig í fyrra.
Svo rölti ég til Valda og heyrði í honum hljóðið. Kom í ljós að hann hafði sett í myndarlegan fisk en eitthvað var taumurinn slappur og tók uppá því að slitna. Síðan þá var hann búinn að setja í fleiri fiska og missa. Hann eftirlét mér strenginn og rölti sem leið lá til Geira sem var að moka upp smábleikju í efsta strengnum af þremur sem reyndust vera okkur gjöfulastir í ferðinni.
Bleik og blá fékk að fara undir á ný en í þetta skiptið með tungsten kúlu sem ég hafði hnýtt deginum áður. Fyrsta kast fer svona líka fallega yfir strenginn og þegar ég hafði strippað fluguna nánast alveg að tánum á mér sé ég hvar kemur á spíttinu c.a. pund bleikja og neglir fluguna. Með hjartað í vöðluskónum mínum nýju landaði ég þessari bleikju og var lengi að jafna mig. Svona vill ég fara þegar að því kemur.
Svona gekk kvöldið og eftir 30 bleikjur á hinar ýmsu flugur (þó flestar á Bleik og blá) var ákveðið að grilla kvöldmatinn. Við höfðum fengið þær upplýsingar að það væri kolagrill á svæðinu en við nánari athugun kom í ljós að grillið var MIA (missing in action). Hlóðum við þá bara okkar eigið grill þarna á malareyri og fíruðum upp í kolunum. Stuttu seinna rann svínið ofan í okkur og áhyggjur af efnahagsástandi og svínaflensu voru víðsfjarri. Svona eiga veiðitúrar að vera; gott veður, góður matur, góður félagsskapur, fallegt umhverfi og góð veiði.
Eftir matinn fórum við aftur niður að á og tíndum upp c.a. 10 bleikjur til

Fyrsta flundran. Ef vel er að gáð má sjá kunnuglega flugu í kjaftinum
viðbótar ásamt þremur flundrum. Ég hef aldrei á ævinni séð eins mikið af flundru og þarna í ósnum. Það var alveg sama hvar maður steig niður færi, alls staðar skutust þessi kvikindi undan manni. Svo þegar fór að flæða að horfðum við á þær renna sér inn ósinn í þúsundatali og fóru þá að elta agnið okkar og jafnvel að taka. Ég fékk einkennililega mjúka töku á Bleika og bláa í einu rennslinu mínu og reyndist það vera þetta flundru vesen. Þótti mér þetta stórmerklilegt og myndaði í bak og fyrir. Eftir þetta var koddinn kærkominn.
Daginn eftir tókum við því rólega og fengum okkur staðgóðan morgunverð sem samanstóð af beikoni og eggjum. Meira svín. Að svíni loknu héldum við til veiða enn á ný. Þessi morgunn var í raun og veru bara endutekning á kvöldinu áður að einu undanskildu. Þannig var mál með vexti að ég var að berja á neðsta strengnum eins og svo oft áður og mér verður litið í stríðan streng sem rennur alveg upp við harða land. Ekki var nú sérstaklega djúpt þarna í þessum streng en hann var mjór og straumharður. Sé ég hvar ein bleikja hangir í harðastrengnum og gúffar í sig einhverju sem kemur niður ána. Ég bakkaði varlega frá og skipti um taktík. Set bleika marfló á fóninn og tökuvara. Kasta þessu í strenginn og í þriðja kasti tekur bleikja en þó ekki bleikjan sem ég sá því ég var ennþá að horfa á hana. Eftir þetta prófaði ég að setja fluguna í hvítfryssið efst í strengnum og týndi upp 5-6 bleikjur til viðbótar. Allir vorum við gapandi yfir því hversu miklum straum bleikjan hélt sig í þarna. Það var komið að hádegismat og það var bleikja í matinn.
Framhald síðar en ég henti inn myndum í þartilgerða möppu.
Filed under: fluguveiði, flyfishing, Veiði Tagged: | flundra, sjóbirtingur, sjóbleikja, Staðará
hvernig fær maður veiðileyfi í Staðará?
kv. Elías 13 ára
sæll elías þú getur fengið leyfi á ölkeldu S:4356718 hjá bryndísi eða svavari á ölkeldu svæðið. og svo hjá gísla á álftavatni síminn þar er 4356695 en þetta er sitthvort svæðið.
Hvernig skiptast svæðin er það efra og neðra fyrir neðan brú þá ? Álftavatn efra og ölkelda neðra ?
Ekki hugmynd. Þegar ég var þarna þá vorum við með alla ána en veiddum bara neðst. Kíktum einu sinni ofar en sáum ekki fisk.