Smá fréttir

Ég hef nú ekki verið að veiða mikið sjálfur undanfarið og því haft frá litlu að segja hér. En það fer nú vonandi að breytast sem fyrst. Ég tók nokkur köst í Minnivallalæk í gær og fékk þrjá urriða sem allir voru um pundið. Neðst í Hólmakvíslum sá ég nokkur kríli í uppítökum og settist [...]

Fréttir úr Grafará

Jæja það er nú orðið fullangt síðan síðast og kannski ekki að furða þar sem ég hef mikið verið úti á landi og þessi helv… 3G pungur virkar ekki sem skyldi. Ég er orðinn vel bakaður í framan með gleraugnafar og hvítt enni. Þvílíka
veðurblíðan sem búin er að vera er með ólíkindum. Ég er búinn [...]

Húseyjarkvísl 6.-9. júlí 2009

Eins og lesendur hafa eflaust tekið eftir hef ég verið við veiðar í Húseyjarkvísl undanfarna daga. Fyrstu vaktina áttum við Guðrún A svæði sem þýðir Gullhylur, Laxhylur, Flathylur og Reykjafoss. Við ákváðum að byrja í Laxhyl og eins og venjan er orðin byrjuðum við á hitchi. Þá tóku við 2-3 smáflugur sem ég man ekki [...]

Byrjar vel í Húseyjarkvísl

Byrjaði að veiða í Húseyjarkvísl í dag með Guðrúnu kærustu minni og það má segja að það hafi byrjað vel. Vorum komin í hús um kl.16 eftir smá tafir við að reyna að hafa uppi á nýja disknum með Pöpunum. Það gekk ekki og tafði okkur aðeins. Við byrjuðum í Laxhyl sem er að mínu [...]