Byrjar vel í Húseyjarkvísl

Falleg 74 cm hrygna úr Laxhyl í Húseyjarkvísl

Falleg 74 cm hrygna úr Laxhyl í Húseyjarkvísl

Byrjaði að veiða í Húseyjarkvísl í dag með Guðrúnu kærustu minni og það má segja að það hafi byrjað vel. Vorum komin í hús um kl.16 eftir smá tafir við að reyna að hafa uppi á nýja disknum með Pöpunum. Það gekk ekki og tafði okkur aðeins. Við byrjuðum í Laxhyl sem er að mínu mati einn fallegasti og skemmtilegasti fluguveiðistaður sem ég hef veitt. Tökum hefðbundið leikkerfi á þetta og byrjuðum smátt. Það var svo í lokin að hálftommu þýsk snælda fékk að rúlla yfir staðinn og neðarlega er tekið hressilega í. Um stund sáum við hvorki tangur né tetur af fiskinum en svo þegar sporðblaðkan kíkti uppúr var ljóst hvers var að vænta.

Eftir snarpa baráttu kom 74 cm grálúsug hrygna með halalús á land og fékk svo að fara aftur. Það var gaman þegar hún fór og spreyjaði duglega yfir okkur sem á bakkanum vorum. Stuttu seinna setti Guðrún í lax í Flathyl en sá lak af eftir stutta stund. Góð byrjun. Læt vita hvernig gengur og hendi svo inn fleiri myndum þegar ég kemst heim í almennilega tengingu.

2 svör

  1. Stórglæsilegur fiskur!

  2. Glæsileg saga, sorglegt með stöngina en þú færð hana nú væntanlega bætta. Maður verður að skoða Húseyjarkvísl.

Skildu eftir svar