Jæja það er nú orðið fullangt síðan síðast og kannski ekki að furða þar sem ég hef mikið verið úti á landi og þessi helv… 3G pungur virkar ekki sem skyldi. Ég er orðinn vel bakaður í framan með gleraugnafar og hvítt enni. Þvílíka

Flott bleikja úr Grafará - Mynd Friðgeir Valdemarsson
veðurblíðan sem búin er að vera er með ólíkindum. Ég er búinn að upplifa frábærar stundir á bökkum Minnivallalækjar og ýmislegt alveg furðulegt líka. Lá uppi á hól og fylgdist með þegar vorflugupúpu var kastað á flottan fisk neðst í læknum. Frábært að sjá þegar hann renndi sér c.a. meter til vinstri og hamraði púpuna. Æðislegt að grípa um sporðinn á svona kvikindi sem sennilega losaði fimm pundin.
Mér leiðist að viðurkenna það að laxveiðin á hug minn allan þessa dagana og ég tel niður dagana þangað til næsti túr rennur upp. Það er svo sem ekki túr af verri endanum en ég deili stöng í Haffjarðará í tvo daga í byrjun september. Hvað um það, þangað til verður maður að hafa hugann við efnið. Hér á landi eru staddir belgískir blaðamenn á mínum vegum að veiða silung. Þeir veiddu í Grafará í einn dag og settu í tvær bleikjur en misstu. Ég skal viðurkenna það að mér leist ekkert á blikuna þegar þeir sögðu mér hvernig hefði farið en tók gleði mína á ný þegar ég fékk símtal í dag.

Flottur staður - Mynd Friðgeir Valdemarsson
Veiðimaður frá Akureyri fór og veiddi í ánni í hálfan dag í gær og setti í 5 bleikjur, landaði 3. Stærsta bleikjan var 50 cm og fullyrti Eyfirðingurinn að stærri fiskur hafi tekið tökuvarann hans. Frábærar fréttir og ég bíð nú bara mynda til að birta. Nú fer að aukast veiðiálag í Grafará og vonandi veiðin með. Allar komu bleikjurnar í gær á púpur andstreymis. ÉG hlakka til að komast sjálfur að veiða þarna.

Glæsileg mynd - Mynd Friðgeir Valdemarsson
Flokkað undir: Veiði, fluguveiði, flyfishing | Tagged: bleikja, grafará, sjóbleikja